Gefur sjálfur 100 þúsund 19. júlí 2012 13:00 Björn Bragi segir hlaupabuxurnar vera þrengstu flík sem hann hafi átt og að dýrið sjáist úr margra kílómetra fjarlægð. Fréttablaðið/ernir „
Ég setti mér það markmið að reyna að safna hálfri milljón og ef það tekst ætla ég sjálfur að gefa 100.000 krónur í viðbót,“ segir Björn Bragi Arnarsson, sem hleypur til styrktar Krabbameinsfélaginu í Reykjavíkurmaraþoninu 18. ágúst. Sjálfur missti Björn Bragi ástvin úr krabbameini á síðasta ári og var það stór ástæða þess að það félag varð fyrir valinu. „Því miður er það þannig að flestir Íslendingar þekkja til einhvers sem hefur þurft að glíma við þennan sjúkdóm, eða hreinlega glímt við hann sjálfir, svo þetta málefni er mörgum hugleikið,“ segir hann. Hann segir það gefa sér meiri kraft í æfingarnar að vita til þess að hann sé að láta gott af sér leiða. Björn segist hafa fengið smá bakþanka þegar hann sá fatnaðinn sem hann átti að hlaupa í og sérstaklega vöktu buxurnar hjá honum óhug. „Þetta er þrengsta flík sem ég hef nokkurn tímann farið í. Eins og vinur minn orðaði það þá sést í dýrið úr margra kílómetra fjarlægð,“ segir hann. Þrátt fyrir að hafa verið feiminn að fara út í þeim fyrst um sinn segir hann svo þægilegt að hlaupa í þeim að hann hafi ákveðið að komast yfir það. Hann hleypur nú alltaf í þeim en er þó enn ekki farinn að þora að koma fram í dagsbirtu. „Ég fer yfirleitt bara út að hlaupa seint á kvöldin, en þetta er allt að koma. Ég verð vonandi alveg laus við sviðsskrekkinn fyrir keppnina og verð þá með allt á útopnu,“ segir Björn Bragi.- trs
Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fleiri fréttir Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Sjá meira