Siggi Hlö þeytir skífum á Sardiníu 19. júlí 2012 15:00 Siggi segir parið þekkja til á Íslandi og ekki hafa treyst neinum öðrum en honum til að halda uppi stuðinu í brúðkaupspartýinu. Fréttablaðið/pjetur „
Maður er bara heimsfrægur, það er bara svoleiðis,“ segir plötusnúðurinn Siggi Hlö sem er staddur á Sardiníu á Ítalíu þar sem hann þeytir skífum í brúðkaupi næstkomandi laugardag. Það er nýsjálenskt par sem gengur í það heilaga á eyjunni fögru og létu þau fljúga með Sigga út til að spila í partýinu. „Þau þekkja aðeins til á Íslandi og vildu bara fá þann besta í málið, þau treystu engum öðrum í þetta,“ segir hann. Eiginkona Sigga fékk að fljóta með og ákváðu þau að gera sér vikulanga ferð úr þessu og þannig fara í sumarfrí í leiðinni. Brúðkaupið fer fram utandyra á ströndinni og verður veislan þar rétt hjá. „Ég fór og kíkti á aðstæður áðan. Það er búið að setja upp fínt dansgólf og þetta lítur allt voða vel út. Ég er bara að fara að spila þarna á ströndinni, það er spennandi,“ segir hann. Siggi segir ekki miklar líkur á því að hann spili mörg íslensk lög í veislunni þó hann hafi tekið með sér disk með Páli Óskari og Milljónamæringunum. „Það er smá mambófílingur í honum svo það er aldrei að vita nema maður kynni veislugesti fyrir þeim. Annars geri ég þetta bara eins og venjulega og reyni að lesa hópinn og láta hann leiða mig áfram,“ segir hann. Spurður hvort hann hafi áður spilað við svipaðar aðstæður neitar hann því. „Þetta er alveg toppurinn.“- trs
Mest lesið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Krefja Apple um íslensku Menning Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Fleiri fréttir Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Sjá meira