Byggja á popp-kúltúr í sápuóperustíl 14. júlí 2012 09:00 Nýútskrifuð Sýning Nönnu og félaga er byggð á popp-kúltúr og er í sápuóperustíl. fréttablaðið/ernir
Nanna Gunnarsdóttir útskrifaðist nýlega úr Rose Bruford College of Theatre and Performance í London. Þar nam hún evrópsk leikhúsfræði. „Það er aðallega leiklist en við lærum einnig dálítið um leikstjórn, leikmyndagerð, leikhönnun og fleira sem tengist leikhúsi.“ Aðaláherslan er á nýsköpun og hópavinnu. Á sunnudagskvöld býður Nanna Íslendingum að sjá útskriftarverk sitt úr skólanum. Það ber heitið „Þetta er Brad heimur“ eða á ensku „It‘s a Brad World“. Nanna segist byggja sýninguna á list popplistamannsins Roy Lichtensteins: „Ég skoða hvernig ég get fært listrænt ferli Lichtensteins yfir á leiksviðið og gert sýningu úr því. Ég notast meðal annars við skuggamyndir. Lichtenstein vann mikið upp úr því sem taldist til lélegrar listar í samfélaginu og það er það sem ég er búin að vera að gera; skoða lélega list,“ segir hún og hlær. „Sýningin er byggð á popp-kúltúr í sápuóperustíl.“ Titillinn er dálítið sérstakur en hann er einnig vísun í Lichtenstein og teiknimyndamálverk hans. „Næstum því alltaf þegar hann sýnir kvenpersónur í málverkum sínum sem eru voðalega kvenlegar og ósjálfbjarga, þá er alltaf talað um Brad. Hann er svona staðalímynd karlmannsins sem kemur og bjargar málunum,“ segir Nanna og hlær. Leikararnir sem taka þátt í sýningunni á sunnudaginn eru hinir sömu og léku í verkinu úti í London. Auk þeirra verður einn heiðursgestur. „Já, hann kemur frá Kostaríka,“ segir Nanna og brosir. „Hann er mættur til landsins. Hann fer með stórt hlutverk í sýningunni en segir ekki mikið.“ Nanna hugsaði sýninguna fyrir vini og vandamenn sem höfðu ekki tækifæri til að sjá sýninguna úti í London og einnig fyrir hverja þá sem hafa áhuga á leiklist og nýsköpun í þeim geira. Aðeins ein sýning er á dagskrá á Íslandi en ef það verður mjög góð aðsókn segist hún geta bætt við aukasýningu sama kvöld. Leikararnir verða aftur á móti aðeins á landinu í fimm daga og því er tíminn naumur. Leiksýningin er um það bil hálftími í flutningi og Nanna vonast til að sjá sem flesta í Gaflaraleikhúsinu á sunnudaginn klukkan átta. halla@365.is
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira