Harvey Weinstein gestgjafi hjá Evu Maríu 6. júlí 2012 13:00 Eva María með framleiðandanum Harvey Weinstein og viðskiptafélaga sínum Ally Canosa. „
Það var yndislegt af Harvey að vera gestgjafi opnunarinnar en hann hefur stutt okkur mikið í þessu verkefni," segir Eva María Daníels, kvikmyndaframleiðandi og stofnandi netgallerísins Gallery for the People, sem var með opnun á dögunum í Los Angeles. Eva María og félagi hennar, Ally Canosa, stofnuðu galleríið fyrr á þessu ári og er það einungis á netinu. Fjórum sinnum á ári er galleríið hins vegar með sýningar þar sem væntanlegum kaupendum gefst tækifæri til að skoða verkin með eigin augum. Síðasta sýning var haldin í Los Angeles í síðustu viku en þær voru svo heppnar að einn stærsti kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, Harvey Weinstein, var gestgjafi opnunarinnar. Hann hefur reynst Evu Maríu og Canosa vel eftir að þær opnuðu galleríið og fest kaup á nokkrum verkum. „Síðan við opnuðum galleríið í mars hefur hann keypt af okkur nokkur verk en opnunin í síðustu viku gekk rosa vel og það var fjölmennt," segir Eva María en hluti af ágóða sýningarinnar rann til félagsins The Art of Elysium. „Það var meiriháttar að fá að styrkja gott málefni í leiðinni en félagið hvetur leikara, listamenn og tónlistarmenn til að sinna og verja tíma sínum með langveikum börnum." Eva María er að gera það gott sem framleiðandi í borg englanna og með mörg járn í eldinum. Listagalleríið er eins konar hliðarverkefni hjá Evu Maríu en tvær kvikmyndir, þar sem hún er meðframleiðandi, verða frumsýndar í haust: Goats sem skartar David Duchovny og Veru Farmiga í aðalhlutverkum, og What Maisie Knew með Alexander Skarsgård og Julianne Moore. „Goats fer loksins í kvikmyndahús hér þann 10. ágúst og What Maisie Knew verður sýnd á Toronto-hátíðinni í september. Það er nóg að gera og mörg verkefni í þróun sem of snemmt er að tala um á þessu stigi." -áp
Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Fleiri fréttir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Sjá meira