Lífið

Krummi í leikstjórastólinn

Krummi Björgvinsson.
Krummi Björgvinsson. Mynd/Vilhelm
Krummi Björgvinsson tónlistarmaður vinnur nú að myndbandi við lagið City með hljómsveit sinni Legend. Myndbandið var tekið upp á þjóðhátíðardaginn og segist Krummi hafa lært á upptökugræjuna jafnóðum.

„Ég vopnaði mig með einni „kameru", tveimur karakterum og aðstoðarmanneskju og eyddi sautjándanum á hlaupum um bæinn. Ég hafði vonast til að fleira fólk væri í bænum þennan dag, en því virðist fara fækkandi ár hvert," segir söngvarinn. Myndbandið segir frá ungu og ástföngnu pönkarapari sem býr á götunni og fer um bæinn og stelur sér til matar ásamt því að taka þátt í hátíðarhöldunum. „Þau lenda svo upp á kant hvort við annað og rífast en allt endar þó vel. Sagan er svolítið klisjuleg en efnið er myndrænt og flott."

Krummi nýtur liðsinnis tveggja vina sinna við gerð myndbandsins því Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir stíliseraði klæðnað pönkaranna og kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Jón Runólfsson mun aðstoða hann við eftirvinnslu.

„Frosti mun klippa þetta með mér og verður á tökkunum á meðan ég verð í hlutverki „backseat driver". Mér fannst þetta helvíti skemmtilegt verkefni og mun því eflaust gera meira af þessu í framtíðinni. Það væri líka gaman að prófa að gera myndbönd fyrir aðra," segir hann.

Fyrsta plata Legend, Fearless, hefur fengið prýðisgóða dóma hjá gagnrýnendum og segist Krummi ekki óttast gagnrýnisraddir þegar myndbandið verður frumsýnt síðar í sumar. „Ég reyni fyrst og fremst að gera bara það sem mér finnst sjálfum flott og treysti á þrennt í þeim efnum; innlifun, sannfæringu og einlægni. Sé það til staðar held ég að það skili sér til fólks. Annars á það bara eftir að koma í ljós hvað fólki finnst, sjálfum finnst mér efnið flott og ég er ánægður með það."- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.