Felur "fjársjóði“ á tökustöðum 21. júní 2012 10:30 Eysteinn Guðni Guðnason með eitt boxanna sem hann faldi á tökustað Batman Begins á Svínafellsjökli.
Íslenskir og erlendir ferðalangar geta núna tekið þátt í ævintýralegri „fjársjóðsleit" hér á landi tengdri kvikmyndum. Geocache er vinsæl alþjóðleg „fjársjóðsleit" eða ratleikur sem styðst við GPS-tækni. Leikurinn gengur út á að hver sem er getur falið „fjársjóðsbox" hvar sem er í heiminum í gegnum síðuna Geocaching.com. Kvikmyndagerðarmaðurinn Eysteinn Guðni Guðnason hefur komið fyrir fjórtán kvikmyndaboxum víðs vegar um Ísland. „Þemað var að fela þetta á frægustu tökustöðunum. Þetta eru bæði víðförlir staðir og líka út úr leið," segir Eysteinn Guðni. Um er að ræða tökustaði mynda á borð við Batman Begins, Prometheus, Flags of Our Fathers og Die Another Day sem voru allar teknar upp að hluta til hér á landi, auk mynda eins og Börn náttúrunnar, Pappírs Pési og Nói albínói. „Þetta er mjög skemmtileg leið til að fara á staði sem maður fer annars ekki á," segir hann. „Þetta eru líka staðir sem maður fer kannski oft á án þess að vita að þar voru teknar upp frægar bíómyndir." Í boxunum sem hann útbjó eru gestabók, útprentaðar ljósmyndir úr kvikmyndunum og minjagripir. „Þetta vekur athygli á íslenskri kvikmyndasögu og nú þegar eru margir útlendingar byrjaðir að taka þátt í leiknum." Þátttakendum er bent á að fara inn á síðuna Kvikmyndir.is/geotrail til að hefja leikinn. Á Kvikmyndir.is er einnig hægt að finna tökustaði íslenskra og erlendra kvikmynda hér á landi með aðstoð Google Maps, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. - fb
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira