Af Broadway í bíóhús 21. júní 2012 09:00 Tom Cruise fer með hlutverk Stacee Jaxx í söngvamyndinni Rock of Ages sem frumsýnd var í gær.
Söngvamyndin Rock of Ages var frumsýnd í kvikmyndahúsum í gær. Leikstjóri myndarinnar er Adam Shankman, en sá gerði einnig söngvamyndina Hairspray. Rock of Ages er byggð á samnefndum söngleik er slegið hefur í gegn á Broadway. Líkt og söngleikurinn inniheldur kvikmyndin meðal annars slagara á borð við Waiting For a Girl Like You með sveitinni Foreigner, Can‘t Fight This Feeling með REO Speedwagon og Every Rose Has Its Thorn með Poison. Kvikmyndin gerist í Los Angeles árið 1987 og segir frá barþjóninum og rokksöngvaranum Drew Boley og söngkonunni Sherrie Christian sem bæði eiga sér þann draum að slá í gegn sem söngvarar. Bæði starfa þau á hinum vinsæla skemmti- og tónleikastað The Bourbon Room á Sunset Strip sem er þekktur fyrir að hýsa villta rokktónleika. Eigandi staðarins, Dennis Dupree, sannfærir rokkstjörnuna Stacee Jaxx um að halda eina tónleika á staðnum í þeirri von að græða nóg til að geta borgað skuldir staðarins. Eiginkona borgarstjórans er þó ósátt við þau áform og reynir hvað hún getur til að koma í veg fyrir tónleikana og að fá syndabælinu lokað í eitt skipti fyrir öll. Tónlistin spilar veigamikið hlutverk í myndinni og má heyra lög með sveitum á borð við Def Leppard, Journey, Poison, Twisted Sister og Foreigner óma þegar persónurnar bresta í söng og því dugði ekkert minna en að ráða söngvara í aðalhlutverk myndarinnar. Diego Andrés González Boneta fer með hlutverk Drew Boyle en sá hefur getið sér gott orð sem söngvari og leikari í heimalandi sínu, Mexíkó. Þjóðlagasöngkonan og dansarinn Julianne Hough fer með hlutverk Sherrie Christian, en hún fór einnig með aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar Footloose. Með önnur hlutverk fara Russell Brand, Paul Giamatti, Catherine Zeta-Jones, Mary J. Blige, Malin Åkerman, Alec Baldwin og Tom Cruise sem leikur rokkgoðið Stacee Jaxx. Þó valinn maður sé í hverju rúmi hefur það ekki forðað myndinni frá slæmri gagnrýni og á vefsíðunni Rottentomatoes.com fær myndin aðeins 42 prósent ferskleikastig. Flestum þykir söguþráðurinn þunnur og leikurinn ósannfærandi og fær Tom Cruise að auki misjafna dóma fyrir hlutverk sitt sem Stacee Jaxx.
Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Fleiri fréttir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Sjá meira