Lífið

Verður í Reykjavík um helgar

Tom Cruise var glaðbeittur á setti þegar Oblivion var í tökum í New York á dögunum. Nordicphotos/getty
Tom Cruise var glaðbeittur á setti þegar Oblivion var í tökum í New York á dögunum. Nordicphotos/getty
Tökur á stórmyndinni Oblivion fara fram hér á landi um þessar mundir og það hefur varla fram hjá neinum farið að aðalleikari myndarinnar, Tom Cruise, er á Íslandi. Sjöundi hluti myndarinnar er tekinn upp hér á landi og helmingur tökuliðsins kemur frá Íslandi.

Tom Cruise ætlar sér að eyða helgunum í Reykjavík á meðan hann dvelur hér á landi við tökur á stórmyndinni Oblivion, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Tökur á myndinni fara fram fyrir norðan, meðal annars við Hrossaborgir á Mývatnsöræfum, en eins og fram hefur komið hefur leikarinn tekið á leigu glæsihýsið Hrafnabjörg í Eyjafirði á meðan á tökum stendur.

Leikarinn flaug hingað til lands með einkaflugvél á föstudaginn ásamt eiginkonu sinni Katie Holmes og dóttur þeirra Suri. Ekki er vitað hvort mæðgurnar fóru norður með leikaranum á mánudaginn en fjölskyldan dvaldi í svítunni á Hótel Hilton Reykjavik Nordica og má því gera ráð fyrir því að Cruise ætli sér að dvelja þar næstu helgar og njóta höfuðborgarinnar.

Tökulið Oblivion samanstendur af 300 manns og þar af er helmingurinn Íslendingar samkvæmt Claire Raskind, fjölmiðlafulltrúa myndarinnar. Hún segir jafnframt að liðið hafi verið að stilla saman strengi um helgina áður en haldið var norður á sunnudag og mánudag og bætir við að þeim hafi verið sagt að tökuliðið hafi tæmt bílaleigur landins af jeppum.

Það var íslenska landslagið sem heillaði leikstjórann Joseph Kosinski er hann kom fyrst til landsins fyrir ári til að leita að tökustöðum. Sjöundi hluti myndarinnar er tekinn hér á landi en aðrir tökustaðir eru Louisiana, New Orleans, New York og Kalifornía. Tökur hefjast í vikunni og standa yfir næstu 2-3 vikurnar.

Aðalframleiðandi myndarinnar er Universal Pictures en undirbúningsteymi hefur verið störf hér á landi síðustu átta vikurnar. Ráðgert er að tökum á myndinni ljúki um miðjan júlí en Oblivion verður frumsýnd þann 26. apríl á næsta ári. Fyrir utan Tom Cruise leika Morgan Freeman, Melissa Leo og Andrea Riseborough í myndinni.

alfrun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.