Hringir bjöllunni í Reykjavík 19. júní 2012 14:00 Ásgeir og félagar hjá Ísbílnum hringja bjöllunni sinni alls staðar sem þeir koma, en slagorð Ísbílsins er „Þú þekkir mig á bjöllunni“. „
Það geta allir fengið ís hjá okkur og það þarf aldrei að skilja neinn útundan þó hann sé með ofnæmi eða neitt svoleiðis. Við erum með eitthvað fyrir alla,“ segir Ásgeir Baldursson, eigandi fyrirtækisins Ísbílsins. Nú í maí varð stór breyting á rekstri Ísbílsins þegar ákveðið var að byrja að hringja bjöllunni á höfuðborgarsvæðinu líka, en hingað til hafa ísbílarnir aðeins keyrt um úti á landi. „Við erum búin að setja upp tuttugu leiðir í Reykjavík og nágrenni, en þær enda örugglega á að verða um 100 árið 2015 þegar við stefnum á að vera komin með ferðir um allt svæðið,“ segir Ásgeir og bætir við að bensínkostnaður spili tvímælalaust stórt hlutverk í rekstri sem þessum, en að með töluverðri hagræðingu hafi þó náðst að halda ísnum á sama verði frá árinu 2010. Ísbíllinn hefur verið á ferðinni frá árinu 1994 og nú eru alls átta ísbílar á landinu sem keyra eftir áætlun og eru á hverjum stað á tveggja vikna fresti. „Í upphafi fóru bílarnir bara um sumarhúsahverfin og minni bæi landsins en núna erum við farnir að keyra um allt land, á öll pláss og í allar sveitir. Ég hugsa að ég hafi farið á hvern einasta sveitabæ á landinu og í öll þorp,“ segir Ásgeir. Í Ísbílunum er líklega að finna mesta úrval landsins af frosnum íspinnum, en þar eru seldar 43 mismunandi tegundir og til dæmis hægt að fá sjö mismunandi tegundir sem eru framleiddar í algjörlega hnetufríu umhverfi. „Við erum með ís frá Emmessís, Kjörís, Beint frá bónda og að norðan og gerum okkar besta til að þjónusta alla kúnnahópa eins vel og möguleiki er á,“ segir Ásgeir að lokum.- trs
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Sjá meira