Stuttmyndakóngur vikunnar 18. júní 2012 11:00 Stórleikarinn Damon Younger lék í þremur stuttmyndum í síðustu viku en hann hefur leikið í á milli þriðja tug stuttmynda á ferlinum. „
Ég hef aldrei lent í öðru eins, en ég er nú gamall sjómaður svo ég er öllu vanur,“ segir leikarinn Damon Younger, sem er búinn að taka þátt í gerð þriggja stuttmynda á síðustu vikunni og fjórum á síðustu þremur vikum. Að meðaltali hefur Damon leikið í tveimur stuttmyndum á ári undanfarin ár og gróflega áætlað telur hann þær vera tuttugu til þrjátíu í það heila. „Þetta er algjör undantekning núna en mér finnst þetta alveg ótrúlega skemmtilegt og verð ævinlega glaður þegar fólk hugsar til mín og biður mig um að vera með,“ segir hann. Hlutverkin sem hann leikur í myndunum fjórum eru öll mjög ólík en Damon segist ganga ágætlega að svissa á milli karaktera. „Það getur alveg verið erfitt að vera til dæmis í næturtöku og sofa í þrjá tíma áður en maður mætir aftur í vinnuna sem einhver allt annar karakter. Þetta er samt bara það sem ég geri, þetta er vinnan mín,“ segir Damon. Sjaldnast er leikurum greitt fyrir leik sinn í stuttmyndum en Damon segir það ekki koma að sök. „Þetta er fín æfing, maður fær að vera á setti, drekka vont kaffi og borða Ballerina-kexkökur. Ég vil vanda mig í öllu sem ég geri og vinn ötullega að því að gera sjálfan mig að betri einstaklingi og leikara, svo þetta er frábært tækifæri til þess.“ Uppáhaldsstuttmyndin sem hann hefur leikið í hingað til segir hann vera myndina Heart to heart eftir Veru Sölvadóttur, sem hægt er að nálgast ókeypis á síðunni icelandiccinema.com. Leikarinn vinsæli segist nú ætla að hvíla sig á stuttmyndum um sinn og leyfa fleirum að komast að. „Nú ætla ég bara að vera blankur og njóta lífsins, hjálpa mömmu og pabba, reyna að vera duglegur og sjá hvað gerist næst,“ segir Damon hress í bragði og augljóslega spenntur fyrir að sjá hvert lífið leiðir hann næst.- trs
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fleiri fréttir Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Sjá meira