Meðhöfundur að nýrri bók um velgengni 8. júní 2012 10:30 Miðlar visku sinni Sigrún Lilja er meðhöfundur bókar sem nefnist The Success Secret. Mynd/Kári Sverrisson „
Ég hef lúmskt gaman af því að skrifa og þá helst um eitthvað sem getur verið uppbyggjandi eða fræðandi fyrir aðra en það eru einmitt þannig bækur sem ég sjálf sekk mér í,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collection, sem er meðhöfundur í nýrri bók sem nefnist The Success Secret. Bókin, sem er gefin út af Celebrity Press, kemur út í Bandaríkjunum í haust en ásamt Sigrún Lilju koma fleiri frumkvöðlar í atvinnulífinu um allan heim að verkinu. Þar ber hæst nafn bandaríska metsöluhöfundarins Jacks Canfield sem er þekktur fyrir þátttöku sína í bókunum The Secret og The Chicken Soup for the Soul. Efnistök The Success Secret eru árangurssögur og hagnýt ráð frá sérfræðingunum og frumkvöðlum sem hafa náð langt á sínu sviði. „Hver og einn höfundur ljóstrar upp sínum bestu leyndarmálum um árangur og gefur góð ráð með það að leiðarljósi að hjálpa öðrum við að ná árangri í markaðssetningu, viðskiptum og í mörgum þáttum hins daglega lífs.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigrún Lilja tekur þátt í að skrifa bók á borð við þessa en hún var einnig meðhöfundur að bókinni The Next Big Thing sem kom út á síðasta ári og komst á topp metsölulista Amazon. „Það var í kjölfarið á velgengni þeirrar bókar sem útgefandi bauð mér að taka þátt í þessari bók líka. Ég var fljót að samþykkja það enda nýtur Canfield gríðarlegrar velgengni og virðingar í í Bandaríkjunum og ég aðhyllist þá hugmyndafræði sem hann miðlar,“ segir Sigrún sem byrjaði að skrifa síðasta haust. Hennar kafli í bókinni fjallar um hversu mikilvægar öflugar hugsanir séu til að ná árangri í lífinu. „Þó að bókin komi út á ensku á ég von á því að hún verði fáánleg í takmörkuðu upplagi í nokkrum vel völdum bókabúðum hér á landi í haust um svipað leyti og hún kemur út í Bandaríkjunum.“ - áp
Mest lesið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira