Jónsi fær almennilegar móttökur 17. maí 2012 10:00 Jónsi í Bakú þar sem Eurovison-keppnin verður haldin í næstu viku. „
Aserar eru yndislegir, kurteisir og almennilegir í alla staði,“ segir Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, um lífið í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan. Þar er heitt í veðri, eða 25 til 30 stiga hiti. Næstkomandi þriðjudag stígur hann á svið ásamt Gretu Salóme í Crystal-höllinni og flytur lagið Never Forget. „Okkur mætir mikil velvild og ef okkur skyldi vanhaga um eitthvað finnst okkur við bara þurfa að smella fingrum,“ segir Jónsi, sem flaug út með um tuttugu manna Eurovision-hópi á laugardaginn. Síðan þá hafa stífar æfingar staðið yfir, auk blaðaviðtala og móttaka. Aðspurður segir Jónsi stemninguna í hópnum góða. „Við þurfum að styðja hvert annað því það tekur á taugarnar að vera svona mikið saman þegar við erum fjarri ástvinum okkar.“ Hvað varðar öryggisgæsluna segir Jónsi hana minni en þegar hann keppti í Istanbúl árið 2004. Þá var hann iðulega með tvo til fjóra lífverði í kringum sig, aðallega vegna hryðjuverkaógnar. „Núna fáum við lögreglufylgd í umferðinni og vitanlega er góð gæsla í Kristalshöllinni en það er bara barnaleikur miðað við seinasta skipti hjá mér.“ Hann segir umhverfið í kringum höllina stórkostlegt. „Höllin stendur yst á skaga við höfnina og innan við hana er risastór upphækkaður flötur sem rís tuttugu til þrjátíu metra upp í loftið. Á honum er stærsta flaggstöng sem ég hef séð.“ Hvað með atriðið ykkar. Er það að smella vel saman? „Já, við vorum að æfa það núna rétt í þessu og það er alveg geirneglt.“ - fb
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira