Hjólað í sínu fínasta pússi 16. maí 2012 13:00 Alexander Schepsky og Jón Gunnar Tynes Ólason voru komnir með leið á skæra spandex hjólagallanum og standa nú fyrir hjólaátaki þar sem fólk er hvatt til að hjóla saman í tvídfatnaði 16. júní næstkomandi. Fréttablaðið/GVA
Alexander Schepsky og Jón Gunnar Tynes Ólasson segja að það vanti almennilega hjólamenningu á Íslandi og standa nú fyrir Tweed Run viðburði í miðbæ Reykjavíkur þann 16.júní þar sem fólk er hvatt til að hjóla saman klætt sínu fínasta pússi. „Ég er orðinn fertugur og langar bara ekki að hjóla um borgina í skærum spandex galla. Mig vil geta hjólað þangað sem ég vill fara í hversdagsfötunum á klassíska borgarhjólinu mínu," segir Alexander Schepsky, hjólreiðaáhugamaður og starfsmaður Orf líftækni. Alexander stendur fyrir svokölluðum Tweed Run hóphjólreiðum þann 16 júní næstkomandi ásamt félaga sínum Jóni Gunnari Tynes Ólasyni. Þetta er í fyrsta sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi en Tweed Run er þekkt fyrirbæri út í heimi. Þáttakendur leggja sig fram við að mæta í klæðnaði sem í anda bresks hefðarfólks einn eftirmiðdag, helst á klassískum borgarhjólum og hjóla svo saman í hóp um borgina eftir fyrirfram ákveðinni leið. „Við viljum búa til skemmtilegan viðburð og setja myndarlegan og gaðlegan svip á borgina. Þessu hefur verið vel tekið og ég vona að sem flestir taki því fram tvídfötin sín, skelli á sig leðurhönskum og hjóli með," segir Alexander og fullyrðir að tvídefnið sé tilvalið til hjólreiða enda bæði vatns-og vindhelt. Alexander fluttist hingað til lands frá Þýskalandi fyrir 13 árum síðan. Hann var vanur mikilli hjólamenningu frá heimalandi sínu og kom það honum í raun á óvart hversu fínt hjólreiðakerfið var á höfuðborgarsvæðinu. „Það er ekki hægt að kvarta yfir hjólaleiðunum í Reykjavík en það eru samt allir á bíl. Fólk sest upp í bíl til að keyra 100 metra. Það sem vantar er hversdagslegri hjólamenning og að fólk horfi ekki einungis á hjólreiðar sem íþrótt eða tómstundagaman, sem er gott útaf fyrir sig, heldur líka sem lífstíl. Nú er sem betur fer aukning á þessu viðhorfi og ég fanga því"," segir Alexander sem reynir að fara flestar sínar leiðir á hjóli. Verðlaun verða veitt fyrir best klædda herrann og dömuna sem og glæsilegasta fararskjótann. Eftir hjólatúrinn verður svo klassískt enskt teboð fyrir þáttakendur á Kex Hostel. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um viðburðinn og skrá sig á síðunni Tweedrun.weebly.com eða á Facebook. alfrun@frettabladid.is
Lífið Menning Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira