Lífið

Mættir aftur á dansgólfið

Ensku stuðboltarnir í Hot Chip gefa út sína fimmtu plötu eftir helgi. Hún kallast In Our Heads og er að sjálfsögðu stútfull af hressilegum popplögum með dansvænum undirtóni.

Hot Chip var stofnuð árið 2000 af skólafélögunum Alexis Taylor og Joe Goddard. Skömmu síðar bættust í hópinn þeir Owen Clarke, Felix Martin og Al Doyle. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 2004, Coming on Strong, á vegum Moshi Moshi-útgáfunnar. Til að kynna plötuna spilaði Hot Chip á Nasa á Iceland Airwaves við frábærar undirtektir. Nokkrum vikum síðar steig hljómsveitin aftur á svið á Nasa og hafa Hot Chip-liðar talað um að þeir hafi fyrst slegið í gegn í Reykjavík.

Hljómsveitin samdi við risann EMI sem gaf út aðra plötu hennar, The Warning, árið 2006. Hún kom Hot Chip á kortið og var tilnefnd til hinna virtu Mercury-verðlauna í Bretlandi. Lögin Over and Over og Boy From School komust bæði á vinsældarlista en hið síðarnefnda var nýverið spilað í The Simpsons, sem er að sjálfsögðu mikill heiður.

Tvö ár liðu þar til þriðja platan, Made in the Dark, leit dagsins ljós en í millitíðinni hitaði hljómsveitin upp fyrir Björk á tónleikum í Laugardalshöll. Annað smáskífulagið Ready For the Floor fór í sjötta sæti breska vinsældarlistans og var einnig tilnefnt til Grammy-verðlaunanna.

Árið 2010 gaf Hot Chip svo út sína fjórðu plötu, One Life Stand, og fékk hún víðast hvar mjög góða dóma. Einhverjir söknuðu þó alvöru „hittara" og fannst tónlistin full róleg á köflum. Eftir útgáfu hennar voru Hot Chip-liðar duglegir við að sinna hliðarverkefnum sínum. Taylor starfrækti About Group, Goddard The 2 Bears og þeir Martin og Doyle spiluðu með New Build. Gítarleikarinn Owen Clarke var sá eini sem ákvað að taka því rólega.

In Our Heads er fyrsta plata Hot Chip sem kemur út á á vegum Dominos-útgáfunnar. Góðir dómar halda áfram að límast við bandið því tímaritið Mojo gaf plötunni fjórar stjörnur af fimm og Uncut átta af tíu.

Hljómsveitin verður á stífri tónleikaferð um heiminn á næstu mánuðum og hefur verið bókuð fram í október. Á dagskránni er spilamennska á Sonar-hátíðinni í Barcelona, á Bestival í Bretlandi og á tónleikastaðnum fræga Hollywood Bowl, svo eitthvað sé nefnt.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.