Kex-menn fegra bakgarð sinn 1. ágúst 2012 23:00 Pétur Marteinsson og félagar hans í Kexi hosteli eru byrjaðir á að skapa grænt svæði við Hverfisgötuna. fréttablaðið/stefán „
Okkur fannst þessi rassendi á miðbænum, það er að segja Hlemmur og Barónsstígur, þurfa á smá andlitslyftingu að halda. Við ræddum fyrst við húseigendur í kring og þeir tóku vel í hugmyndina og þá bárum við þetta undir Reykjavíkurborg og hún aðstoðar okkur við verkefnið," segir Pétur Marteinsson, eigandi og framkvæmdastjóri Kexi hosteli, sem stendur við Skúlagötu 28. Pétur og meðeigendur hans hafa ráðist í framkvæmdir á svæðinu á milli Kexins og verslunarinnar 10-11 og ætla að skapa þar grænt svæði. „Við tókum við húsnæðinu í nóvember árið 2010 og lögðum þá áherslu á að við fengjum smá skika af lóðinni fyrir ofan okkur til að geta haft meiri áhrif á ásýnd Kexins og nú viljum við fara að gera fallegt í bakgarðinum okkar," útskýrir Pétur. Á svæðinu var áður malarbílastæði og sem geymdi nokkur bílhræ og var að því lítil prýði fyrir íbúana í kring. Þegar hefur verið ráðist í framkvæmdir á svæðinu og vonar Pétur að það verði orðið nothæft í lok mánaðarins. „Við erum byrjaðir að móta svæðið og fáum til þess aðstoð frá Veraldarvinum sem búa á móti okkur á Hverfisgötunni. Á árum áður stóð hér viti og á grunni Skúlagötu 28 var saltfisksplan, það væri gaman að geta gert einhvers konar minnisvarða um gamla tíma þarna." Einnig eru uppi hugmyndir um að reisa gróðurhús á skikanum og rækta þar grænmeti fyrir veitingastað Kexins. Inntur eftir því hvort garðurinn fái að standa óhreyfður um óákveðinn tíma segir Pétur það ekki öruggt því að reitnum fylgi byggingaréttur sem hann og meðeigendur hans hafa enga stjórn á. „Ég segi bara er á meðan er. Á meðan reiturinn stendur ónýttur getum við í það minnsta haft það huggulegt þarna." - sm
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira