Bandaríkjamenn taka fram úr Íslendingum á Airwaves 1. ágúst 2012 10:00 Miðasala á Iceland Airwaves tónlistarhátíðina hefur gengið vel. Íslendingar eru í fyrsta sinn ekki fjölmennastir á hátíðinni.f réttablaðið/valli
Miðasala fyrir tónlistarhátíðina Iceland Airwaves hófst í desember í fyrra og að sögn Gríms Atlasonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, er líklegt að Bandaríkjamenn verði fjölmennastir á hátíðinni. Árlega sækja um sjö þúsund manns hátíðina og af þeim fimm þúsund miðum sem fara í almenna sölu eru nú um sex hundruð eftir og hafa Bandaríkjamenn keypt um fjórðung seldra miða. Hingað til hafa Íslendingar verið fjölmennasta þjóðin á hátíðinni en við erum nú í öðru sæti á eftir Bandaríkjamönnum. „Íslendingar eru gjarnir á að bíða fram á síðustu stundu með að kaupa miða og enda því oft á að kaupa miða á uppsprengdu verði á svörtum markaði, sem er ekki góður „bissness“ að mínu mati. Við verðleggjum miðana í þremur þrepum; ef þú kaupir miðann snemma færðu hann á 12.500 krónur, svo hækkar hann upp í 14.500 og núna kostar hann 16.500 krónur, sem mér þykir ansi hófstillt miðað við það magn af sveitum sem kemur fram,“ útskýrir Grímur sem reiknar með að uppselt verði á hátíðina um miðjan ágúst. Tónlistarhátíðin fer fram dagana 31. október til 4. nóvember, tveimur vikum seinna en fyrri ár því að fjöldi ferðamanna á landinu var orðinn svo mikill í október að erfitt var að fá flug og gistingu fyrir tónlistarfólk Airwaves. „Þegar hátíðin byrjaði árið 1999 komu fáir ferðamenn til Íslands í október. Síðan þá hefur ásókn til landsins aukist og nú er október orðinn hluti af háannatímanum. Það mætti segja að við værum orðin fórnarlömb eigin velgengni því við áttum orðið erfitt með að fá flug fyrir tónlistarfólkið okkar.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Útför Megasar Lífið Fleiri fréttir Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Sjá meira