Málverkinu fræga af Monu Lisu stolið 21. ágúst 2012 20:00 Málverkinu fræga, Monu Lisu, var stolið.
Málverkinu fræga, Monu Lisu, var stolið af listasafninu Louvre á þessum degi árið 1911. Það var málarinn Louis Béroud sem uppgötvaði stuldinn þegar hann kom að auðum veggnum morguninn eftir. Hann hafði samband við öryggisvörð sem taldi að myndin hefði verið tekin niður fyrir myndatöku. Það reyndist hins vegar ekki rétt og safninu var því tafarlaust lokað í viku meðan á rannsókn málsins stóð. Franska ljóðskáldið Guillaume Apollinaire, sem hafði áður sagt opinberlega að Louvre-safnið ætti að brenna til kaldra kola, lá fjótlega undir grun. Hann var fangelsaður en Guillaume reyndi að koma sökinni yfir á vin sinn, Pablo Picasso, sem einnig var yfirheyrður. Vinirnir voru þó fljótlega leystir úr haldi. Tveimur árum síðar komst upp um þjófinn sem reyndist vera ítalski þjóðernissinninn Vincenco Peruggia, sem var starfsmaður safnsins og taldi verkið þjóðareign Ítala. Eftir að hafa geymt verkið í íbúð sinni í tvö ár gerðist hann óþolinmóður og reyndi að selja Uffizi-safninu í Flórens það. Verkið var sýnt á helstu söfnum Ítalíu en var síðan sent aftur til eigenda sinna í Frakklandi. Peruggia var hylltur um alla Ítalíu fyrir verknaðinn og fékk aðeins nokkra mánuði í fangelsi.
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira