Illt ráðabrugg smákrimma 2. ágúst 2012 14:00 Emile Hirsch og Matthew McConaughey í hlutverkum sínum sem smákrimminn Chris Smith og leigumorðinginn Killer Joe Cooper.
Killer Joe var frumsýnd í kvikmyndahúsum í gær. Myndin skartar Matthew McConaughey í aðalhlutverki og er frá leikstjóra The Exorcist. Spennumyndin Killer Joe skartar Emile Hirsch, Matthew McConaughey og Juno Temple í aðalhlutverkum og segir frá Chris Smith sem ræður leigumorðingja til að myrða móður sína svo hann komist yfir líftryggingu hennar. Chris skuldar glæpamanninum Digger Soames háar fjárhæðir og sér ekki fram á að geta greitt skuldir sínar. Hann ákveður því að ráða lögreglumanninn og leigumorðingjann Killer Joe Cooper til að myrða móður sína svo hann komist yfir líftryggingu hennar. Chris hefur þó ekki heldur efni á að greiða Killer Joe fyrirframgreiðsluna sem Joe setur sem skilyrði og verða þeir ásáttir um að Joe taki Dottie, systur Chris, í gíslingu sem eins konar tryggingu fyrir að upphæðin verði greidd að verkinu loknu. Með Joe og Dottie tekst þó undarleg vinátta og verður lögreglumaðurinn eins konar draumaprins fyrir Dottie. Á meðan virðist ráðabrugg Chris þó ætla úr böndunum verði ekki tímanlega í taumana gripið. Leikstjóri myndarinnar er William Friedkin sem er líklega þekktastur fyrir kvikmyndirnar The French Connection, The Exorcist og Rules Of Engagement. Hann vann handrit myndarinnar í samstarfi við leikskáldið Tracy Letts, en myndin er byggð á samnefndu leikriti Letts frá árinu 1993. Þeir höfðu áður unnið saman við gerð hrollvekjunnar Bug sem kom út 2009 og er byggð á samnefndu leikverki Letts. Killer Joe hefur fengið ágæta dóma og voru 75 prósent ritaðra ummæla á vefsíðunni Rottentomatoes.com góð. Matthew McConaughey þykir standa sig vel sem ógeðfelldur sadisti með herramannslegt yfirbragð og vilja sumir meina að þetta sé besti leikur hans til þessa. Aðrir gagnrýnendur segja söguþráðinn missa marks og að persónurnar séu lítið annað en lákúrulegar og að myndin sé í besta falli dramatískari og lengri útgáfa af sjónvarpsþættinum The Jerry Springer Show.
Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fleiri fréttir Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Sjá meira