Verður í Reykjavík um helgar 19. júní 2012 09:00 Tom Cruise var glaðbeittur á setti þegar Oblivion var í tökum í New York á dögunum. Nordicphotos/getty
Tökur á stórmyndinni Oblivion fara fram hér á landi um þessar mundir og það hefur varla fram hjá neinum farið að aðalleikari myndarinnar, Tom Cruise, er á Íslandi. Sjöundi hluti myndarinnar er tekinn upp hér á landi og helmingur tökuliðsins kemur frá Íslandi. Tom Cruise ætlar sér að eyða helgunum í Reykjavík á meðan hann dvelur hér á landi við tökur á stórmyndinni Oblivion, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Tökur á myndinni fara fram fyrir norðan, meðal annars við Hrossaborgir á Mývatnsöræfum, en eins og fram hefur komið hefur leikarinn tekið á leigu glæsihýsið Hrafnabjörg í Eyjafirði á meðan á tökum stendur. Leikarinn flaug hingað til lands með einkaflugvél á föstudaginn ásamt eiginkonu sinni Katie Holmes og dóttur þeirra Suri. Ekki er vitað hvort mæðgurnar fóru norður með leikaranum á mánudaginn en fjölskyldan dvaldi í svítunni á Hótel Hilton Reykjavik Nordica og má því gera ráð fyrir því að Cruise ætli sér að dvelja þar næstu helgar og njóta höfuðborgarinnar. Tökulið Oblivion samanstendur af 300 manns og þar af er helmingurinn Íslendingar samkvæmt Claire Raskind, fjölmiðlafulltrúa myndarinnar. Hún segir jafnframt að liðið hafi verið að stilla saman strengi um helgina áður en haldið var norður á sunnudag og mánudag og bætir við að þeim hafi verið sagt að tökuliðið hafi tæmt bílaleigur landins af jeppum. Það var íslenska landslagið sem heillaði leikstjórann Joseph Kosinski er hann kom fyrst til landsins fyrir ári til að leita að tökustöðum. Sjöundi hluti myndarinnar er tekinn hér á landi en aðrir tökustaðir eru Louisiana, New Orleans, New York og Kalifornía. Tökur hefjast í vikunni og standa yfir næstu 2-3 vikurnar. Aðalframleiðandi myndarinnar er Universal Pictures en undirbúningsteymi hefur verið störf hér á landi síðustu átta vikurnar. Ráðgert er að tökum á myndinni ljúki um miðjan júlí en Oblivion verður frumsýnd þann 26. apríl á næsta ári. Fyrir utan Tom Cruise leika Morgan Freeman, Melissa Leo og Andrea Riseborough í myndinni. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira