Sjáðu brúðkaupsmyndir Natalie Portman 8. ágúst 2012 13:30 Meðfylgjandi myndir voru teknar í brúðkaupinu. myndir/cover media
Natalie Portman gekk í hjónaband með sínum heittelskaða, Benjamin Millepied, við sólarlag í Kaliforníu á laugardaginn. Það verður sífellt vinsælla meðal ríka og fræga fólksins að gifta sig á einkaheimilum eða afskekktum stöðum og litlar og nánar athafnir virðast vera í tísku um þessar mundir. Það var því ekki við öðru að búast af brúðkaupi hinnar hlédrægu Natalie Portman, 31 árs, og franska dansarans Benjamins Millepied, 35 ára, en að það yrði allt hið innilegasta og krúttlegasta. Athöfnin var að gyðingasið og haldin á einkaheimili í Big Sur í Kaliforníu við sólarlag. Um 100 gestir voru viðstaddir, þar á meðal veldispían Ivanka Trump og barnastjarnan Macaulay Culkin sem hefur verið góður vinur Portman í mörg ár. Natalie var klædd í krúttlegan hvítan kjól sem þótti mjög í hennar anda. Hann var einfaldur í sniðum og hlutlaus, náði henni rétt niður fyrir hné og var með gegnsæjum síðum ermum. Við kjólinn var hún í hvítum flatbotna tátiljum, með slegið hár, slör og blómakrans. Maturinn í brúðkaupinu vakti mikla athygli en hann var allur í samræmi við mataræði Portman sem borðar engar dýraafurðir. Til dæmis var engin hefðbundin brúðarterta á boðstólum heldur franskar smákökur sem innihéldu engin röng hráefni. Natalie og Benjamin kynntust við gerð myndarinnar Black Swan árið 2009 þar sem hann var danshöfundur og hún fór með aðalhlutverkið og hlaut Óskarsverðlaun fyrir. Þau eiga eitt barn saman, soninn Aleph sem er 14 mánaða.- tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira