Strandvörður í hjólastól í sigurliði mýrarboltans 8. ágúst 2012 15:00 Team Hasselhoff Arna situr hér í strandvarðarstólnum og er umvafin drullugum liðsfélögum sínum í Team Hasselhoff sem sigraði í kvennadeild Mýrarboltamótsins á Ísafirði í ár. mynd/Hajo von Häfen „
Auðvitað langar mann alltaf ógeðslega mikið að fara inn á völlinn og spila með, en stemningin í liðinu okkar er svo rosalega góð og mikið sprellað og haft gaman svo það er alveg þvílíkt skemmtilegt hjá okkur utan vallar líka,“ segir hin 22 ára gamla Arna Sigríður Albertsdóttir, fyrirliði Team Hasselhoff sem sigraði í kvennadeild mýrarboltans á Ísafirði í ár. Arna Sigríður lenti í skíðaslysi í Noregi í desember 2006 og hlaut þar mænuskaða frá brjósthrygg og niður. Hún er bundin í hjólastól eftir slysið og gat því ekki tekið þátt í drulluslagnum sjálfum en var mætt á hliðarlínuna í öllum leikjum liðsins um helgina og hvatti sínar stelpur til dáða. „Stelpurnar hjálpuðu mér um, en það er auðvitað allt í drullu og frekar erfitt að komast um svæðið þegar maður er í hjólastól,“ segir Arna, en hún leiddi lið sitt til sigurs í þrjátíu og fjögurra liða kvennadeild mótsins. Team Hasselhoff er skipað 23 stúlkum sem í grunninn er vinkonuhópurinn hennar frá Ísafirði. Eins og nafnið gefur til kynna var Baywatch-þema hjá stelpunum í ár og voru þær íklæddar sundbolum og jökkum eins og þekkjast vel úr þáttunum sívinsælu. „Við létum smíða strandvarðarstól og fengum pabba einnar til að leika Hasselhoff. Stóllinn átti upphaflega að vera fyrir hann en svo kom upp sú hugmynd að ég færi upp í hann á meðan leikirnir væru og það var algjör snilld. Þetta var eiginlega í fyrsta skipti sem ég sá mýrarboltaleik því ég er venjulega svo lágt niðri í hjólastólnum að ég sé mjög takmarkað,“ segir Arna sem hafði sjálf prófað að spila mýrarbolta fyrir slysið. „Jói Bæring, aðalritari Mýrarboltafélagsins, var að þjálfa mig á skíðum og hann fór einu sinni með okkur á þrekæfingu í mýrarboltann, svo ég þekki aðeins hvernig þetta er,“ segir hún. Hún segir engan vafa á að Team Hasselhoff muni mæta aftur að ári til að verja titilinn. „Það dettur engum í hug að fara á Þjóðhátíð eða neitt annað núna, það er bara mýrarboltinn hér eftir,“ segir hún og hlær. Arna Sigríður lætur meiðsl sín alls ekki stoppa sig og segir lífinu síður en svo lokið þó maður sé fastur í hjólastól. „Ég er til dæmis að æfa mig fyrir Reykjavíkurmaraþonið núna 18. ágúst,“ segir hún en hún er þegar búin að fara eitt hálfmaraþon í sumar, á handahjóli. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira