Svona kemur þú í veg fyrir sykurneyslu 15. júní 2012 22:15
Margir kannast við að kunna sér ekki hóf þegar kemur að sælgætisneyslu. Þetta er oftast vítahringur sem stafar af mataræði. Til dæmis getur óhófleg saltneysla aukið þörfina fyrir sykur. Sykurinn veldur vímu sem dettur snögglega niður og sykurþörfin rís á ný. Hvað er til ráða? 1. Prótín. Sumir upplifa sykurþörf þegar líkaminn kallar á prótín. Eggjahvítur og skyr eru góðir prótíngjafar. 2. Fjarlægið freistingar. Farið í gegnum skápana og losið ykkur við sætindin. Reynið að forðast að kaupa meira í búðinni. 3. Fáið ykkur göngutúr í staðinn fyrir eftirrétt. Ef löngunin er enn til staðar eftir tíu mínútur skuluð þið bursta tennurnar en eftirbragðið blandast ekki vel við sætubragð svo löngunin ætti að hverfa. 4. Dreifið huganum. Besta ráðið er að reyna að gleyma lönguninni. Lesið bók, spilið á hljóðfæri, sinnið erindagjörðum eða hreinlega leggið ykkur. Forðist að sitja við eldhúsborðið og hugsa um sælgæti. 5. Skiptið sætindum út fyrir ávexti. Ávaxtasykur er hollari en hvítur sykur og trefjarnar í ávöxtunum hægja á upptöku sykursins. 6. Veljið vel. Ef þið ætlið að gera vel við ykkur á laugardagskvöldi skuluð þið frekar fá ykkur tvo bita af 70% súkkulaði heldur en mjólkursúkkulaði eða lakkrís. 7. Lesið á umbúðir. Það er ótrúlegt hversu mikill hvítur sykur leynist í matvörum sem við neytum dagsdaglega. Sniðgangið þær allra sætustu. 8. Drekkið vatn. Það er ótrúlegt hvað tvö stór vatnsglös geta gert. 9. Ekki borða sykraðan morgunmat og reynið að forðast sykur þangað til í kaffitímanum. Sykurneysla fyrri part dags kveikir á sykurþörfinni yfir daginn og getur valdið ógleði og óþægindum í maga. 10. Hafið hollt snakk til reiðu. Frosin vínber og bananar eru hreinasta sælgæti! Að lokum er gott að hafa í huga að enginn breytist á einum degi og þess vegna er best að taka þetta í litlum skrefum. Annars er hætta á að falla í freistni og jafnvel tapa sér algjörlega. halla@365.is
Mest lesið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira