Leikstýrir Skaupinu í fjórða skipti 24. júlí 2012 10:00 Leikstýrir skaupinu Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir Áramótaskaupinu í fjórða sinn í ár. fréttablaðið/gva
Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir Áramótaskaupinu í ár og er þetta í fjórða sinn sem hann leikstýrir Skaupinu. Gunnar Björn mun að öllum líkindum einnig koma að handritaskriftunum líkt og fyrri ár og segir Skaupið skemmtilegt verkefni þó það geti oft á tíðum verið stressandi. „Þetta er skemmtilegt verkefni og mikil áskorun en alltaf jafn stressandi. Þó mönnum hafi líkað hin Áramótaskaupin er ekki öruggt að þeim þyki næsta Skaup gott. Maður er alltaf á byrjunarreit og það er líklega ástæðan fyrir því að mér finnst þetta svona gaman,“ útskýrir hann. Gunnar Björn er í sumarfríi með fjölskyldu sinni um þessar mundir og segist ekki hafa fylgst sérstaklega vel með fréttum það sem af er ári en að brátt verði breyting þar á. „Ég hef ekki verið duglegur að fylgjast með fréttum fram að þessu, en það breytist núna. Undirbúningsvinnan fer að hefjast og oftast spretta bestu hugmyndirnar upp þegar maður byrjar að vinna í handritinu.“ Í öðrum fréttum af Gunnari Birni er frá því að segja að hann steig aftur á svið sem leikari eftir nokkurt hlé í leikverkinu Ævintýri Múnkhásens sem sýnt var í Gaflaraleikhúsinu í vor. Verkið er byggt á ýkjusögum þekktasta lygara heimsins, þýska barónsins Múnkhásen, og verður sett aftur á svið í haust. - sm
Mest lesið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira