Kominn með erlenda umboðsmenn 9. júní 2012 10:00 Leikstjórinn Reynir Lyngdal er kominn með umboðsmenn hjá William Morris Endeavor og United Agents. fréttablaðið/vilhelm „
Maður er kominn einu skrefi lengra og hefur aðgang að aðeins stærri heimi,“ segir leikstjórinn Reynir Lyngdal. Hann er kominn með umboðsmenn hjá bandarísku umboðsskrifstofunni William Morris Endeavor, sem er sú stærsta í heimi, og bresku skrifstofunni United Agents. „Ég hitti þetta fólk í Cannes en var búinn að vera í samskiptum við það síðan í febrúar. Þetta er tilkomið mikið til út af Frosti. Það var mikill hiti og spenna fyrir henni í Cannes,“ segir Reynir en sýnishorn úr spennumynd hans vakti mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í síðasta mánuði. Reynir er ekki búinn að skrifa undir samning við umboðsskrifstofurnar tvær. Umboðsmennirnir eru samt þegar farnir að starfa fyrir hann því þeir hafa sent honum alls konar handrit, meðal annars að hryllingsmynd og sjónvarpsþáttaröð. „Þetta er allt voða flott og fínt en þetta er bara hjóm þangað til maður ýtir á eftir hlutunum sjálfur. Fókusinn hjá mér núna er að klára Frost vel og það er mjög spennandi verkefni,“ segir Reynir, sem er með báða fætur á jörðinni. Frost er í eftirvinnslu um þessar mundir og er stefnt á frumsýningu í haust. Tveir aðrir íslenskir leikstjórar eru á mála hjá William Morris Endeavor, eða Óskar Þór Axelsson sem leikstýrði Svartur á leik og Baltasar Kormákur. Meðal annarra leikstjóra hjá fyrirtækinu eru stórlaxar á borð við Michael Bay, Tim Burton og Quentin Tarantino. -fb
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira