Ein á móti Vísindakirkjunni 5. júlí 2012 13:00 Katie Holmes skipulagði skilnaðinn vel og sótti um þegar Tom Cruise var staddur víðs fjarri, nánar tiltekið hér á Íslandi. Hún krefst fulls forræðis yfir Suri Cruise og segir skilið við Vísindakirkjuna með því að skrá barnið í kaþólskan skóla.
Vísindakirkjan er talin leika lykilhlutverk í skilnaði Tom Cruise og Katie Holmes. Cruise er áhrifamaður innan kirkjunnar en Holmes var sögð hafa alltaf verið með fyrirvara gagnvart Vísindakirkjunni og hennar trú. Katie Holmes kom heimsbyggðinni á óvart er hún sótti um skilnað við Tom Cruise í síðustu viku. Cruise var hér við tökur á Oblivion en hjónin gengu hönd í hönd um miðbæ Reykjavíkur aðeins nokkrum dögum áður er þau fögnuðu bandaríska feðradeginum með sex ára dóttur sinni Suri. Ljóst er að einn stærsti skilnaður í Hollywood er í vændum enda toppaði Cruise nýlega lista Forbes yfir launahæstu leikara í heimi með rúma 9 milljarða íslenskra króna í tekjur á síðasta ári. Eins og vera ber keppast fjölmiðlar vestanhafs við að flytja fréttir af skilnaðarmálinu og eru flestir sammála um að Vísindakirkjan leiki lykilhlutverk í ástæðu skilnaðarins. Cruise er áhrifamaður innan kirkjunnar og bæði börn hans, Connor og Isabella, aðhyllast trú Vísindakirkjunnar. Vefsíðan TMZ segir að Holmes hafi löngum haft fyrirvara fyrir Vísindakirkjunni en hún varð meðlimur árið 2005, stuttu eftir að hún byrjaði að hitta Cruise. Það voru áætlanir Cruise að koma dóttur þeirra, Suri, fyrir í sérstökum búðum kirkjunnar sem settu punktinn yfir i-ið fyrir Holmes. Búðirnar nefnast Sea Organization en þar er börnunum kennt allt um trúnna um borð á báti fjarri fjölskyldum sínum.Tom Cruise.Fyrrum meðlimir kirkjunnar segja Holmes nú vera álitna ógn fyrir Vísindakirkjuna þar sem hún veit of mikið um starfsemi hennar í gegnum Cruise. People Magazine fullyrðir að útsendarar kirkjunnar fylgist grannt með hverju fótspori leikkonunnar eftir skilnaðarfréttirnar, sem hefur fyrir vikið aukið öryggisgæslu í kringum sig. Holmes er kaþólsk og hefur skráð Suri í kaþólskan skóla í New York. Hún sótti um skilnað þar í borg og krefst fulls forræðis yfir barninu. Vinir leikkonunnar segja hana óttast mest að hljóta sömu örlög og Nicole Kidman er hún skildi við Cruise árið 2001 en þá kusu Connor og Isabella að búa hjá föður sínum og stunda skóla Vísindakirkjunnar og misstu samband við móður sína. UM VÍSINDAKIRKJUNAStofnuð af rithöfundinum L. Ron Hubbard árið 1953 sem var þekktur fyrir vísindaskáldsögur sínar.Leiðtogi er David Miscavige.Ekki viðurkennd trú í Frakklandi, Kanada, Þýskalandi og Bretlandi.8 milljónir meðlima, að sögn Vísindakirkjunnar, í 120 löndum.Stjörnur innan kirkjunnar auk Cruise eru John Travolta, Lisa Marie Presley og Kirstie Alley.Samkvæmt kenningum Vísindakirkjunnar er manneskjan andleg vera eða svokallað þetan. Hugurinn skiptist í rökræna vitund og undirvitund sem er sérlega næm fyrir áföllum og áreiti. Áföllin skilja eftir sig ör, svokölluð engrams, á undirvitundinni sem eru rót vandamála manneskjunnar.
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira