Kennir ungu fólki jóga 9. október 2012 11:23 Marissa Sigrún
Marissa Sigrún hefur æft jóga í nokkur ár þótt hún sé aðeins 23 ára. Þar á undan æfði hún dans, djassballett og líkamsrækt. "Ég hef verið að læra kundalini-jóga hjá Guðrúnu Darshan sem rekur Andartak-kundalini jógastöð. Ég byrjaði í mars en ég hafði stundað kundalini og fleiri tegundir af jóga í nokkur ár. Mér finnst kennaranámið afar spennandi því þá öðlast maður mun meiri þekkingu á þessu formi líkamsræktar. Ég fékk þá flugu í höfuðið í sumar að kenna yngra fólki þar sem stærstur hluti jógaiðkenda er miðaldra konur," segir Marissa Sigrún. "Jóga hefur gert mér gott og mér fannst þörfin vera til staðar að fá ungt fólk til að stunda það. Mér datt því í hug að leita til Hins hússins, þar sem mér var vel tekið. Ég setti upp plaköt í flestum framhaldsskólum en auk þess var sagt frá þessu á Facebook-síðu Hins hússins," segir Marissa Sigrún, sem kennir tvisvar í viku, á fimmtudögum og laugardögum, í október og nóvember. Tveir tímar eru búnir en Marissa segir ekkert mál að koma í tíma hvenær sem er. "Ungt fólk hefur mjög gott af kundalinijóga. Það eykur einbeitingu, er nærandi og styrkjandi og dregur úr þunglyndi og kvíða. Auk þess sefur fólk betur sem stundar kundalini-jóga. Maður er ekki bara að hreyfa líkamann heldur er einnig hugleiðsla og öndunaræfingar sem gefur manni ró og losar um streitu. Gott fyrir þá sem eru í krefjandi námi," segir Marissa enn fremur. Faðir Marissu er frá Mexíkó en móðir hennar er íslensk. Hún flutti hingað til lands þrettán ára og talaði þá ekki íslensku. "Mér fannst mjög skemmtilegt að flytja til Íslands því mér fannst menningin á Íslandi henta mér betur," segir Marissa, sem saknar helst sólarinnar í Mexíkó, en hún er alin upp á ferðamannastaðnum Cabo San Lucas. "Ég ætla að halda áfram að læra jóga og langar til að vera með annað námskeið í Hinu húsinu í vor. Mig langar að læra nokkrar tegundir jóga," segir hún og bætir við að það sé gott að læra fagið á Íslandi.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira