M&M býður myndlist heim 28. júní 2012 15:30 "Galleríið er hér uppi,“ er Kristján Freyr eflaust að hugsa um leið og Anton Brink ljósmyndari smellir af.
Ný bók eftir Hugleik Dagsson, Enn fleiri íslensk dægurlög, kemur út í dag. Samhliða verður opnuð sýning á verkum hans í nýju galleríi Bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi 18. „Hugleikur fær þann heiður að vígja galleríið okkar bæði með glænýjum myndum úr bókinni, sem hann er að gefa út í dag, og eldra efni," segir Kristján Freyr Halldórsson, verslunarstjóri í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18. „Galleríið verður opnað formlega á þriðju hæðinni klukkan 17 í dag með tilheyrandi gleði. Frændi Hugleiks, Örn Eldjárn, ætlar meðal annars að spila nokkur lög fyrir gesti og gangandi." Um aðdragandann að opnun gallerísins hefur Kristján Freyr þetta að segja: „Þegar við settum upp ljósmyndasýningu í tilefni 50 ára afmælis bókabúðarinnar í fyrra áttuðum við okkur á að hér væri lítið um lausa veggi því þeir væru allir þaktir bókahillum. Þó hefur okkur lengi langað að Mál og menning væri heimili fyrir myndlistina rétt eins og ritlist og tónlist. Nú var ákveðið að taka nokkrar hillur af vegg við hlið kaffihússins Súfistans sem hér hefur verið frá 1996, og startaði sambúð kaffihúss og bókabúðar á Íslandi. Við tókum meira að segja eitt kaffiborðið þannig að bæði kaffihúsið og bókabúðin taka á sig fórnir til að bjóða myndlistinni heim." Kristján segir Hugleik vera hagvanan í Bókabúð Máls og menningar. „Hann var starfsmaður þessarar verslunar um aldamótin 2000 þegar hann var að byrja að hefta saman bækurnar sínar sem hann hefur orðið svo þekktur fyrir," segir hann og kveðst ekki í vafa um að Hugleikur hafi haft áhrif með sínum myndum, að minnsta kosti stuðlað að auknu umburðarlyndi fyrir gálgahúmor hjá landanum.Teikning eftir Hugleik – hvern annan?„Hugleikur er náttúrlega ekki með neinn tepruskap en það sem ég hef séð af myndunum sem verða á sýningunni er langt frá því að vera dónalegt. Í nýju bókinni heldur hann áfram að gera grín að íslenskum dægurlögum, hún er sú þriðja og síðasta í slíkri syrpu. Svo hefur hann teiknað mynd af Bókabúð Máls og menningar. Það varð til þess að mig langaði að gera honum svolítið hátt undir höfði. Vörur hans seljast grimmt hér, bæði til Íslendinga og erlendra ferðamanna." Sýning Hugleiks myndar upphaf gallerístemningar í Bókabúð Máls og menningar. „Við ætlum að láta taka okkur alvarlega í þessum efnum og höfum fengið til liðs við okkur kunnáttufólk til að sjá um sýningar svo við bókabéusarnir séum ekki að fúska við neitt," segir Kristján Freyr. „Oft koma út bækur tengdar myndlistarmönnum og forleggjurum líst vel á hafa svona gallerí inni í bókabúðinni." gun@frettabladid.is
Menning Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Fleiri fréttir Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira