Sigrún Ósk gerir þátt um Neyðarlínuna 14. júlí 2012 13:00 Neyðarlínan byggir á fyrirmynd amerísku þáttanna Rescue 911 sem stjórnað var af William Shatner. Fréttablaðið/anton „
Þetta verða átta þættir og fjallað um eitt til tvö mál í hverjum þeirra,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fréttakona sem mun stjórna íslenskum þáttum um Neyðarlínuna sem verða sýndir á Stöð 2 í haust. Þættirnir segja fjölbreyttar sögur af fólki sem hefur þurft á aðstoð Neyðarlínunnar að halda. „Ég læt mér ekki detta í hug að biðja fólk um að fara út í nein leikræn tilþrif, en að öðru leyti er þetta svipuð hugmynd og amerísku 911-þættirnir því við notum upptökur af símtölum og svoleiðis,“ segir Sigrún Ósk og á þar við þættina Rescue 911 sem sýndir voru á árunum 1989 til 1996. Þættirnir eru ekki fræðsluþættir en að sögn Sigrúnar fela þeir þó í sér óbeina fræðslu. „Í símtölunum heyrast ráðleggingar neyðarvarða og í sumum þáttum býður fagfólk upp á góð ráð,“ segir hún. Hugmyndin kviknaði fyrst fyrir þremur árum þegar Sigrún vann frétt um Skyndihjálparmann ársins. „Það var ung kona sem var valin það árið og við gerðum mjög veigamikla frétt um hana,“ segir hún en fréttin fékk mikil viðbrögð og sá Sigrún strax að þarna væri komið efni sem hægt væri að gera meira úr. Enn er pláss fyrir fleiri sögur í þættina og hvetur Sigrún Ósk alla til að senda sér ábendingar á póstfangið sigrunosk@stod2.is. „Mig langar til dæmis að gera einn þátt um mikilvægi þess að kenna börnum númerið, svo ef einhver þekkir dæmi þar sem börn hafa bjargað málunum þá væri sérstaklega gaman að heyra af því,“ segir hún. Helst er hún að leita að málum sem gerst hafa á síðustu tveimur árum þar sem erfitt er að nálgast neyðarlínusímtöl fyrir þann tíma.- trs
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira