Tilnefnd til þýskra barnabókmenntaverðlauna 23. mars 2012 19:00 Frerk du Zwerg Rán Flygenring myndskreytti bókina sem er eftir Finn-Ole Heinrich, en þau hafa verið tilnefnd til þýsku barnabókmenntaverðlaunanna.Fréttablaðið/valli „
Þetta er fyrsta stóra barnabókaverkefnið mitt," segir Rán Flygenring sem nýlega var tilnefnd til þýsku barnabókmenntaverðlaunanna fyrir bókina Frerk, du Zwerg! Rán er grafískur hönnuður og myndskreytir og hefur unnið í alls kyns verkefnum síðustu ár. Myndskreytingarnar hafa þó verið fyrirferðamestar á teikniborðinu að undanförnu, og sá hún um allar myndskreytingar í Frerk, du Zwerg! sem kom út síðastliðið haust. Höfundur bókarinnar er hinn þýski Finn-Ole Heinrich sem Rán kynntist í gegnum verkefni sem hann vann með íslenskum listamönnum í tengslum við bókamessuna í Frankfurt árið 2011, þar sem Ísland var heiðursgestur. Verðlaunin sem um ræðir nefnast Deutsche Jugendliteraturpreis og hafa þau verið veitt af þýska ríkinu frá árinu 1956. „Þetta eru ein aðal barnabókaverðlaunin í Þýskalandi, svo þetta er auðvitað mikill heiður," segir Rán. Verðlaunin verða veitt á bókamessu í Frankfurt 13 október næstkomandi, svo Rán þarf að bíða nokkuð með að heyra úrslitin. En hvað er á döfinni þar til þá? „Það verður bara að koma í ljós. Ég er stödd á tíbesku viðarpanelhóteli í Darjeeling núna, en ég er að ferðast um Indland og skoða landið og vinna. Næst fer ég til Kalkútta og svo til Dehli. Þetta er alveg æðislegt, Indland er endalaus uppspretta af allskonar," segir Rán að lokum. - trs
Lífið Menning Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira