Sumarjazz Jómfrúrinnar er stórmerkilegt menningarfyrirbæri BBI skrifar 29. júlí 2012 15:43 Jakob Jakobsson, fyrsta karlkyns smurbrauðsjómfrú landsins. Mynd/Stefán Karlsson
Síðustu tónleikar Sumarjazzins á Jómfrúnni voru í gær. Framhaldstónleikaröð verður frá og með næstu helgi út september á Munnhörpunni, veitingastaðnum í Hörpunni. Sumartónleikar Jómfrúrinnar eru „stórmerkilegt menningarfyrirbæri hér í borginni," að sögn Sigurðar Flosasonar, saxófónleikara, sem er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar. Tónleikaröðin hóf göngu sína sumarið 1996 og á hverju ári hafa verið tónleikar á laugardögum á torginu aftan við smurbrauðsstaðinn Jómfrúna á Lækjargötu. Sumarjazzinn er því orðinn 17 ára. „Það hefur alltaf verið mjög vönduð dagskrá. Við höfum eiginlega litið á þetta sem sumardjasshátíð," segir Jakob Jakobsson, smurbrauðsjómfrú, sem rekur Jómfrúna. Frá upphafi hafa aðeins aðilar úr framvarðasveit íslenskrar djasstónlistar fengið að spila á torginu. Jakobi þykir vænt um tónleikaröðina og telur hana dæmi um hve dýrmætt er að fólk sýni frumkvæði og geri eitthvað sjálfstætt. „Það þarf ekkert boð úr einhverri æðri stjórnstöð til að halda menningarviðburð," segir hann. Jakbo segir að tónlistarstefnan djass tengist Danmörku, sem hafi áður verið nokkurs konar mekka djasstónlistar í Evrópu. „Og svo var þetta torg fyrir aftan veitingastaðinn og hrópaði á að við gerðum eitthvað við það," segir hann. Þannig kviknaði hugmyndin að tónleikaröðinni. Hann segir að alla tíð hafi verið mikil ásókn á tónleikana sem alltaf fara fram undir berum himni. Jakob tekur fram hve heppinn hann er að búa að aðstoð Sigurðar Flosasonar sem hefur séð um að móta dagskrá tónleikaraðarinnar og mun einnig sjá um dagskrána á Munnhörpunni.
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira