Miðalausar eftir níu tíma ferðalag 28. júlí 2012 11:00 Andrea Ösp og Unnur dóu ekki ráðalausar þegar þær uppgötvuðu eftir níu tíma keyrslu til Borgarfjarðar eystri að miðana vantaði heldur fengu þá senda með flugvél til Egilsstaða. „
Ég mundi eftir hamborgarakryddinu en ekki miðunum," segir körfuboltakonan Andrea Ösp Pálsdóttir hlæjandi en hún lagði upp í níu tíma svaðilför ásamt vinkonu sinni Unni Hauksdóttur í fyrradag til Borgarfjarðar eystri á tónlistarhátíðina Bræðsluna. Þegar komið var á áfangastað klukkan tvö aðfaranótt föstudags uppgötvuðu þær sér til mikillar skelfingar að miðana vantaði. „Ekki nóg með það heldur gleymdum við að taka bensín á Egilsstöðum. Við pissuðum einhvers staðar þarna, keyrðum svo fram hjá og vorum á seinustu lítrunum í hlutlausum niður brekkuna hingað," segir hún um hasar ferðarinnar. „Síðan var svartaþoka á heiðinni og við rétt náðum að komast. Vissum ekkert hvert við vorum að fara." En hvernig ætla stöllurnar að bjarga málunum? „Ég bað bróður minn um að brjótast inn heima hjá mér, ná í miðana og senda þá með flugvél til Egilsstaða. Maður gerir allt fyrir Bræðsluna," segir hún yfir sig spennt enda fyrsta skipti vinkvennanna á Bræðslunni. Þær vona innilega að miðarnir skili sér í tæka tíð svo þær nái tónleikum hátíðarinnar en Kiriyama Family og Tilbury spiluðu meðal annarra í gær og Mugison, Fjallabræður og fleiri halda uppi stuðinu í dag. Áætluð lending miðanna var klukkan fimm í gær og stefndu hressu vinkonurnar á Egilsstaði. „Maður tekur bara einn sundsprett, nær í miðana og svo er fjandinn laus," segir Andrea. - hþt
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira