Lífið

Sofia fækkar fötum fyrir listina

MYNDIR / COVER MEDIA
Kynbomban Sofia Vergara er aðalstjarnan í verki hjá nýjum, framsæknum listamanni, Domingo Zapata.

Domingo málaði á nánast nakta Sofiu og myndaði hana á heimili sínu í júní.

"Við hittumst í gegnum sameiginlega vini og við byrjuðum að tala um að gera eitthvað saman. Einn daginn sagði hún: Kýlum á það! Þá sagði ég: Gott og vel. Ég á ekki striga svo ég verð að mála á þig," segir Domingo.

Domingo málaði texta spænska ljóðsins Lífið er draumur á líkama Sofiu og tók fjölmargar Polaroid-myndir af verkinu.

"Hún er ein fallegasta kona heims og henni líður vel í eigin skinni. Þvílíkur strigi!"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.