Kjarni innsetningar fangaður í bókverki 3. ágúst 2012 21:00 Elín Hansdóttir. Mynd/Daníel
Útgáfu bókverksins Path – Journey to the Centre var fagnað í Bókaútgáfunni Crymogeu í vikunni, en bókin er samstarfsverkefni myndlistarkonunnar Elínar Hansdóttur og bandaríska rithöfundarins Rebeccu Solnit. Upphaf samstarfsins má rekja til þess þegar Rebecca var stödd hér á landi árið 2009 og sá og heillaðist af samnefndu verki Elínar í Listasafni Íslands. „Við Rebecca hittumst fyrir tilviljun hér á Íslandi það ár. Hún lýsti yfir áhuga á að skrifa um sína reynslu af verkinu og við ákváðum að gefa út lítið bókverk í kjölfarið," segir Elín, sem stödd er hér á landi til að fagna útgáfu bókarinnar, en hún hefur verið búsett í Berlín í nær áratug. Bókin samanstendur af ljósmyndum af verki Elínar og texta eftir Rebeccu. Hún er á ensku, enda ekki síður ætluð alþjóðlegum markaði heldur en þeim íslenska, en texti bókarinnar er jafnframt stutt útgáfa af broti úr næstu bók Rebeccu, sem kemur út á næsta ári. Elín segir það hafa verið áhugaverða reynslu fyrir hana að horfa á verk sín út frá nýju sjónarhorni í miðli sem hún hefur ekki áður unnið með. „Þetta var ómetanlegt, því ég hef mikinn áhuga á því að vita hvernig fólk upplifir það sem ég geri. Það er svo sjaldan sem maður fær að heyra reynslu fólks. Ég geri myndlist sem er hverful, stórar innsetningar sem eru uppi í nokkrar vikur og svo teknar niður. Með þessu bókverki gerðum við tilraun til þess að fanga kjarna verksins í öðrum miðli." -hhs
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira