Leynitrix förðunarmeistarans 2. október 2012 16:15 Steinunn Edda útskrifaðist með diploma í förðun frá Fashion Academy Reykjavík. myndir/einkasafn Steinunnar
Steinunn Edda Steingrímsdóttir förðunarfræðingur er verslunarstjóri í Make Up Store Smáralind. Hún fræðir lesendur Lífsins hverjar aðal áherslurnar eru þegar kemur að haust- og vetrarförðun. „Ég hef fengið að kynnast Make Up Store vörunum vel og er mjög hrifin af þeim enda nota ég þær rosalega mikið. Mér finnst gaman að prófa mig áfram með liti en ég legg mesta áherslu á að láta húðina líta vel út og ná fallegum ljóma í húðina," segir Steinunn og heldur áfram:Glimmer og steinar á augun "Ég er mjög hrifin af dökkum vörum og „smokey" augum í haust og vetur og finnst gaman að prófa mig áfram í því með því að nota glimmer, steina, allskonar skemmtilega liti og hugsa aðeins út fyrir kassann," segir Steinunn.Hér má skoða myndir af Steinunni þar sem hún sýnir það nýjasta í förðun.Vinsælt að blanda saman litum „Númer eitt, tvö og þrjú er að blanda saman litum þegar kemur að því að farða augun. Fallegast finnst mér að hafa augnförðunina milda og blandaða. Ég er sjúk í kinnaliti og nota þá óspart. Stundum fer ég alveg yfir strikið en mér finnst það bara skemmtilegt."Ljós blýantur er gott leynitrix"Leynitrixið mitt til að ná fram sterkum vörum og skörpum útlínum er að nota ljósan blýant í kringum varirnar áður en ég set á mig varalit."Steinunn bloggar á vefnum Margret.is – sjá hér.
Skroll-Lífið Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira