Innlent

Bækurnar seljast nú í gígabætum - ekki bílförmum

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Rafbókin hefur nú hafið innreið sína á íslenskan bókamarkað. Fyrst og fremst var að umdeild erótísk skáldsaga sem hefur fengið bókaútgefendur til að horfast í augu við breytta tíma.

Sagan af stormasömu sambandi hinnar ungu Anastasíu og hinum myndarlega en jafnframt dularfulla Grey hefur heillað lesendur um allan heim. Engin skáldsaga hefur selst jafn hratt og Fimmtíu Gráir Skuggar. Þetta þykir mikið afrek. Ekki síst fyrir þær sakir að skáldsagan þykir afar opinská í kynlífslýsingum.

En vinsældir skáldsögunnar eiga rætur sínar að rekja til rafbókarinnar og á síðustu misserum hafa íslenskir bókaútgefendur og bóksalar lagt mikla áherslu á innleiðingu hennar. Eymundsson hefur sannarlega fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir rafbókum. Fyrirtækið gerði á dögunum samning við eitt Hachette Book Group, eitt stærsta útgáfufélag Evrópu í rafbókum og um leið hafa Íslendingar nú aðgang að rúmlega tvö hundruð fjörutíu þúsund rafbókum.

„Við finnum fyrir miklu ákveðnu stökki, aukinni sölu, með bók eins og þessa," segir Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri hjá Eymundsson. „Við erum rétt að slíta barnskónum í því að takast á við þetta og tækninni fleygir líka áfram og þetta á allt eftir að breytast töluvert á næstu mánuðum."

„Ef við tökum ensku útgáfuna af Fimmtíu Gráum Skuggum þá hefur hún á síðustu fjórum dögum selt fleiri rafbækur en hörð eintök. Þá er einnig merkilegt að flestir þeir sem kaupa hana sem rafbók hafa verið karlmenn."

En af hverju þessar gríðarlegu vinsældir?

„Þetta er Twilight, netið, rafbókavæðingin. Síðan er fólk auðvitað forvitið um kynlíf - öðruvísi kynlíf. Síðan er þetta náttúrulega ástarsaga," segir Helga Birgisdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands. „Netvæðingin yfir höfuð, þessar spunasíður og rafbókavæðingin, lesbrettin og iPad, þetta auðveldar fólki að nálgast bækur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×