Sport

Beckham fær að taka þátt í opnunarhátíð Ólympíuleikanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Beckham.
David Beckham. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Beckham hefur gefið það út að hann fái hlutverk á opnunarhátíð Ólympíuleikanna en leikarnir verða settir með viðhöfn á föstudagskvöldið. Beckham átti sinn þátt í að Ólympíuleikarnir komu til London á sínum tíma en hann var síðan flestum að óvörum ekki valinn í fótboltalandslið Breta á leikunum.

„Þetta er einhverskonar hlutverk í opnunarhátíðinni sem er mér mikill heiður. Ég tók þátt í því að fá leikana til London fyrir sjö árum og ég mjög stoltur af því að Seb (Sebastian Coe) leyfði mér að vera áfram hluti af þessu," sagði David Beckham við Associated Press.

Enskir fjölmiðlar búast við því að Beckham verði einn af síðustu kyndilberunum inn á vellinum en Beckham vildi þó ekki útlista það frekar hvert hlutverk hans yrði á föstudagskvöldið.

David Beckham var ein stærsta fótboltastjarna heims fyrir sjö árum þegar hann var í forystusveit Breta í baráttunni um að fá leikana til London í fyrsta sinn í 64 ár. Það efast enginn um það að þátttaka hans hafði góð áhrif á framboð London.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×