Það er helgi annan hvern mánudag á Prikinu BBI skrifar 19. júlí 2012 14:54 Prikið. „
Þetta er bara eitt það steiktasta sem ég hef lent í í þessum bransa," segir Finni á Prikinu um Mánudagsklúbbinn sem kemur saman á Prikinu annan hvern mánudag. Mánudagsklúbburinn kom fyrst saman í janúar á þessu ári þegar nokkrir vinir ákváðu að hittast á mánudegi og tjútta á Prikinu. „Okkur fannst nokkrum svo óbærilegt í miðbænum um helgar," segir Ólöf Skaftadóttir, driffjöður í Mánudagsklúbbnum. Svo þau töluðu við Finna á Prikinu og fengu að spila annan hvern mánudag. Fyrst í stað var hópurinn ekki fjölmennur en uppátækið vatt svo ansi hressilega upp á sig og nú safnast saman á Prikinu annan hvern mánudag allir þeir sem finna þörf fyrir að hrista úr stirðum limum og djamma á virkum degi. Vinahópurinn var því greinilega ekki einn um skoðun sína á helgarkvöldum í miðbænum og Ólöf segir að Mánudagsklúbbskvöldin séu bestu tvö kvöld hvers mánaðar. Kvöldin trekkja fjölda fólks að og ekki síst helstu bóhema landsins, en á síðasta mánudag voru þar m.a. saman komnir Erpur Eyvindarson rappari, Högni Egilsson söngvari, Þórunn Antonía söngkona, Berglind Pétursdóttir sérlegur gif-grínari og Unnsteinn Manuel, söngvari. Innan raða klúbbsins eru fjölmargir listamenn og ekki er óvenjulegt að þeir stígi á stokk og taki óundirbúið lag fyrir gesti. Meðal annarra hafa Þórunn Antonía og EmmSjé Gauti flutt lög sín á Mánudagsklúbbnum. „Það er helgi annan hvern mánudag hérna," segir Finni en gestafjöldi á Prikinu þegar Mánudagsklúbburinn kemur saman er margfaldur á við venjulegan mánudag.
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira