Lífið

Svona kemur þú í veg fyrir sykurneyslu

Margir kannast við að kunna sér ekki hóf þegar kemur að sælgætisneyslu. Þetta er oftast vítahringur sem stafar af mataræði. Til dæmis getur óhófleg saltneysla aukið þörfina fyrir sykur. Sykurinn veldur vímu sem dettur snögglega niður og sykurþörfin rís á ný. Hvað er til ráða?



1. Prótín. Sumir upplifa sykurþörf þegar líkaminn kallar á prótín. Eggjahvítur og skyr eru góðir prótíngjafar.

2. Fjarlægið freistingar. Farið í gegnum skápana og losið ykkur við sætindin. Reynið að forðast að kaupa meira í búðinni.

3. Fáið ykkur göngutúr í staðinn fyrir eftirrétt. Ef löngunin er enn til staðar eftir tíu mínútur skuluð þið bursta tennurnar en eftirbragðið blandast ekki vel við sætubragð svo löngunin ætti að hverfa.

4. Dreifið huganum. Besta ráðið er að reyna að gleyma lönguninni. Lesið bók, spilið á hljóðfæri, sinnið erindagjörðum eða hreinlega leggið ykkur. Forðist að sitja við eldhúsborðið og hugsa um sælgæti.

5. Skiptið sætindum út fyrir ávexti. Ávaxtasykur er hollari en hvítur sykur og trefjarnar í ávöxtunum hægja á upptöku sykursins.

6. Veljið vel. Ef þið ætlið að gera vel við ykkur á laugardagskvöldi skuluð þið frekar fá ykkur tvo bita af 70% súkkulaði heldur en mjólkursúkkulaði eða lakkrís.

7. Lesið á umbúðir. Það er ótrúlegt hversu mikill hvítur sykur leynist í matvörum sem við neytum dagsdaglega. Sniðgangið þær allra sætustu.

8. Drekkið vatn. Það er ótrúlegt hvað tvö stór vatnsglös geta gert.

9. Ekki borða sykraðan morgunmat og reynið að forðast sykur þangað til í kaffitímanum. Sykurneysla fyrri part dags kveikir á sykurþörfinni yfir daginn og getur valdið ógleði og óþægindum í maga.

10. Hafið hollt snakk til reiðu. Frosin vínber og bananar eru hreinasta sælgæti!

Að lokum er gott að hafa í huga að enginn breytist á einum degi og þess vegna er best að taka þetta í litlum skrefum. Annars er hætta á að falla í freistni og jafnvel tapa sér algjörlega.

halla@365.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.