Yrsa spennt að sjá hverjir leika í myndinni BBI skrifar 6. júní 2012 15:53 Mynd/Sigurjón Rangar
Yrsa Sigurðardóttir er spennt að sjá hverjir munu leika í kvikmyndinni Ég man þig. „Ég fæ ekki að ákveða neitt," segir Yrsa sem skrifaði spennusöguna Ég man þig. Sigurjón Sighvatsson keypti kvikmyndaréttinn á sögunni á dögunum. Óskar Þór Axelsson sem gerði myndina Svartur á leik hefur verið ráðinn sem leikstjóri. Hann mun vitanlega ákveða leikaraliðið og Yrsa hlakkar til að sjá hverjir verða fyrir valinu. Hún ætlar að reyna að skipta sér sem minnst af framleiðsluferli myndarinnar. Hún fær að fylgjast með að vild. „En ég held nú samt ég yrði bara til trafala í sjálfri úrvinnslunni," segir hún. Óskar og starfsfólks hans sjá alfarið um handritsgerðina. Yrsa kemur ekki nálægt henni og hefur engan hug á því. Þegar hefur verið lokið við síðustu drög að handritinu. Næsta vetur munu Óskar og starfsfólk hans fínpússa handritið og ljúka við fjármögnun. Ef allt gengur að óskum telur Yrsa að tökur gætu hafist eftir rúmt ár. Bókin Ég man þig hefur vakið talsverða athygli erlendis. Hún kom út í Noregi á þessu ári. Síðastliðinn mánudag tók Yrsa á móti blaðamanni frá norska dagblaðinu Aftenposten og ræddi við hann um söguna og sögusvið hennar, Hesteyri á Vestfjörðum. „Hún var að skrifa um bókina, en það gerir blaðagreinina svo miklu áhugaverðari að geta séð staðinn sjálfan," segir Yrsa en náttúran á Hesteyri ku vera afar tilkomumikil. Greinin verður eflaust birt á næstu dögum. Þessa dagana er Yrsa á kafi í ritstörfum. Hún er að ljúka við nýja bók. Bókin kemur út um næstu jól. Enn veit hún ekki hvað bókin verður nefnd. „Titill er alltaf það allra allra síðasta sem kemur hjá mér. Ég þvinga hann ekki fram fyrr en daginn fyrir prentun. Hann dúkkar ekkert fyrirhafnarlaust upp." Þegar Yrsa byrjar á bók hefur hún fyrst óljósa hugmynd um hvað henni þykir spennandi. Svo hugsar hún út í eitt um hvernig það gæti orðið enn meira spennandi. Hún reynir að tengja saman fáeina hluti sem henni þætti áhugavert að lesa um sjálfri og sjóða þannig saman söguþráð. „Svo vona ég bara að hann sé ekki of fyrirsjáanlegur."
Mest lesið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira