Krummi í leikstjórastólinn 25. júní 2012 15:00 Krummi Björgvinsson. Mynd/Vilhelm
Krummi Björgvinsson tónlistarmaður vinnur nú að myndbandi við lagið City með hljómsveit sinni Legend. Myndbandið var tekið upp á þjóðhátíðardaginn og segist Krummi hafa lært á upptökugræjuna jafnóðum. „Ég vopnaði mig með einni „kameru", tveimur karakterum og aðstoðarmanneskju og eyddi sautjándanum á hlaupum um bæinn. Ég hafði vonast til að fleira fólk væri í bænum þennan dag, en því virðist fara fækkandi ár hvert," segir söngvarinn. Myndbandið segir frá ungu og ástföngnu pönkarapari sem býr á götunni og fer um bæinn og stelur sér til matar ásamt því að taka þátt í hátíðarhöldunum. „Þau lenda svo upp á kant hvort við annað og rífast en allt endar þó vel. Sagan er svolítið klisjuleg en efnið er myndrænt og flott." Krummi nýtur liðsinnis tveggja vina sinna við gerð myndbandsins því Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir stíliseraði klæðnað pönkaranna og kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Jón Runólfsson mun aðstoða hann við eftirvinnslu. „Frosti mun klippa þetta með mér og verður á tökkunum á meðan ég verð í hlutverki „backseat driver". Mér fannst þetta helvíti skemmtilegt verkefni og mun því eflaust gera meira af þessu í framtíðinni. Það væri líka gaman að prófa að gera myndbönd fyrir aðra," segir hann. Fyrsta plata Legend, Fearless, hefur fengið prýðisgóða dóma hjá gagnrýnendum og segist Krummi ekki óttast gagnrýnisraddir þegar myndbandið verður frumsýnt síðar í sumar. „Ég reyni fyrst og fremst að gera bara það sem mér finnst sjálfum flott og treysti á þrennt í þeim efnum; innlifun, sannfæringu og einlægni. Sé það til staðar held ég að það skili sér til fólks. Annars á það bara eftir að koma í ljós hvað fólki finnst, sjálfum finnst mér efnið flott og ég er ánægður með það."- sm
Mest lesið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Lífið samstarf Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira