Lífið

Meðhöfundur að nýrri bók um velgengni

Miðlar visku sinni Sigrún Lilja er meðhöfundur bókar sem nefnist The Success Secret. Mynd/Kári Sverrisson
Miðlar visku sinni Sigrún Lilja er meðhöfundur bókar sem nefnist The Success Secret. Mynd/Kári Sverrisson
„Ég hef lúmskt gaman af því að skrifa og þá helst um eitthvað sem getur verið uppbyggjandi eða fræðandi fyrir aðra en það eru einmitt þannig bækur sem ég sjálf sekk mér í,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collection, sem er meðhöfundur í nýrri bók sem nefnist The Success Secret.

Bókin, sem er gefin út af Celebrity Press, kemur út í Bandaríkjunum í haust en ásamt Sigrún Lilju koma fleiri frumkvöðlar í atvinnulífinu um allan heim að verkinu. Þar ber hæst nafn bandaríska metsöluhöfundarins Jacks Canfield sem er þekktur fyrir þátttöku sína í bókunum The Secret og The Chicken Soup for the Soul. Efnistök The Success Secret eru árangurssögur og hagnýt ráð frá sérfræðingunum og frumkvöðlum sem hafa náð langt á sínu sviði.

„Hver og einn höfundur ljóstrar upp sínum bestu leyndarmálum um árangur og gefur góð ráð með það að leiðarljósi að hjálpa öðrum við að ná árangri í markaðssetningu, viðskiptum og í mörgum þáttum hins daglega lífs.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigrún Lilja tekur þátt í að skrifa bók á borð við þessa en hún var einnig meðhöfundur að bókinni The Next Big Thing sem kom út á síðasta ári og komst á topp metsölulista Amazon. „Það var í kjölfarið á velgengni þeirrar bókar sem útgefandi bauð mér að taka þátt í þessari bók líka. Ég var fljót að samþykkja það enda nýtur Canfield gríðarlegrar velgengni og virðingar í í Bandaríkjunum og ég aðhyllist þá hugmyndafræði sem hann miðlar,“ segir Sigrún sem byrjaði að skrifa síðasta haust. Hennar kafli í bókinni fjallar um hversu mikilvægar öflugar hugsanir séu til að ná árangri í lífinu. „Þó að bókin komi út á ensku á ég von á því að hún verði fáánleg í takmörkuðu upplagi í nokkrum vel völdum bókabúðum hér á landi í haust um svipað leyti og hún kemur út í Bandaríkjunum.“ - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.