Hryllilegur jaðarsöngleikur frumsýndur í kvöld 8. júní 2012 15:00 „
Það má kalla þetta jaðarsöngleik," segir Valdimar Jóhannsson, einn meðlimur samstarfsverkefnisins Tickling Death Machine, sem verður frumsýnt á Íslandi í kvöld í Iðnó. Um er að ræða samvinnu dansflokksins Shalala og hljómsveitanna Lazy blood og Reykjavík! sem hefur farið sigurför um heiminn. „Verkið er blanda af tónleikum, dansi og hálfgerðu leikhúsi. Við leikum okkur með texta og vinnum með ákveðið þema sem er falsspámenn með mismunandi sýn á enda heimsins." Hann segir þau vinna mikið með hrylling og að hljómflutningurinn flakki frá óhugnanlegum barnagælum yfir í kvikmyndatónlist og harðasta rokkið í bransanum. Þessi sérstæði listaviðburður varð til eftir tónleika á sviðslistahátíðinni Keðju þar sem Valdimar ásamt dansaranum Ernu Hreinsdóttur, sem skipar með honum dúettinn Lazy blood, héldu tónleika með Reykjavík!. Sendiboði frá einni mikilvægustu sviðslistahátíð Evrópu, Kunsten festival des arts í Brussel, kom til þeirra eftir hljómflutninginn og sagði: „Þið verðið að gera verk úr þessu." Hópurinn tók hvatningunni fagnandi en Valdimar og Erna höfðu lengi ætlað að gera verk sem einblínir á tónleikaformið og kannar þátt áhorfenda. Úr varð að hópurinn sýndi fjórar sýningar fyrir fullu húsi á hátíðinni í Brussel vorið 2010 og þar eftir á annarri í Orléans í Frakklandi. Ævintýrið heldur áfram að Íslandsfrumsýningunni lokinni því sýningin ferðast í haust á hátíðina Kyoto Experiment í Japan. Hljómsveitirnar gáfu nýverið frá sér smáskífu með lögum jaðarsöngleiksins og er hún fáanleg á tónlistarveitunni gogoyoko. -hþt
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Megas er látinn Lífið Fleiri fréttir Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Sjá meira