Lífið

Hvað ætla þær að gera í sumarfríinu?

Diljá, Katrín Brynja, Loreen og Lovísa.
Diljá, Katrín Brynja, Loreen og Lovísa.
Lífið forvitnaðist hjá þremur glæsilegum kjarnakonum hvað þær ætla að gera í sumarfríinu.



Lovísa Árnadóttir
fjölmiðlakona

„Ég er nýkomin úr dásamlegu og rómantísku fríi á Ítalíu, þar sem við unnusti minn ráfuðum um litlar þröngar götur í þorpinu Mattinata, borðuðum geggjaðan mat og böðuðum okkur í túrkísbláum sjó. Svo ætla ég að nota afganginn í frí með syninum, tveggja ára, í júlí. Ég hlakka mikið til."

Nú fórstu út með Eurovision-hópnum til Bakú í ár. Hvað fannst þér um sænska sigurvegarann?

„Loreen var jarðbundin, sjálfsörugg og ein fallegasta kona sem ég hef hitt. Hrikalega flott týpa. Svo var hún áhugasöm um Ísland og spurði margra spurninga um landið og tungumálið."

Diljá Ámundadóttir varaborgarfulltrúi Besta flokksins

„Ég seldi íbúðina mína og hætti í vinnunni með nokkurra daga millibili um daginn og ætla í smá reisu sem vill svo til að nær hringinn í kringum heiminn – þó að ég komi ekki við í öllum álfunum. Ég fer af stað í byrjun ágúst en áður en ég legg í hann ætla ég að ganga með fjölskyldunni í náttúrufegurðinni á Hornströndum, fljúga um loftin blá í svifvængjaflugi (paragliding) og vera eins mikið í íslenskum sundlaugum og ég get. Áætluð sumarleyfislok 2012 er rétt fyrir jólin, en svo veit maður aldrei."

Katrín Brynja Hermannsdóttir flugfreyja, blaðamaður og Lottóþula

„Fyrir utan að vinna í einni skemmtilegustu vinnu í heimi þar sem maður hittir ógrynni af frábæru fólki þá lengist „bucket-listinn" fyrir sumarið mjög hratt. Þar er sjósund efst á listanum og við Kolla vinkona ætlum að láta verða af því. Svo stefni ég á 10 kílómetra í ágúst (guð minn góður!) Og svo væri tær snilld ef reyndur fallhlífastökkvari væri til í að taka mig með sér í stökk en mér skilst að það sé eitthvað ólýsanlega magnað. Inn á milli eru molarnir mínir númer eitt, eins og alltaf."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.