Segja stálvirki Hörpu vera í himnalagi 21. maí 2011 05:00 Myndin var tekin um miðjan apríl áður en glerhjúpur Hörpu var að fullu kominn upp. Nú hefur stálið verið sparslað og málað.Mynd/öh
Fjöldi mynda hefur birst á vef Arkitektafélags Íslands á undanförnum vikum af stálvirki Hörpu á lokaspretti framkvæmdanna. Á sumum myndanna, sem teknar voru 17. apríl, gefur að líta ryð og tæringu á stálinu en eins og kunnugt er þurfti að taka niður stálvirki á suðurhlið hússins þegar upp komst um framleiðslugalla í stálinu síðasta sumar. Það eru arkitektarnir Örnólfur Hall og Guðmundur Kr. Guðmundsson sem tóku myndirnar en með þeim hafa þeir birt pistla þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við frágang hússins. „Ég fylgdist með vinnubrögðunum á síðustu metrunum. Þá virtist vera rosalegur hamagangur við að koma þessu í gagnið fyrir opnunina. Ég sem arkitekt myndi ekki hrósa þessum vinnubrögðum,“ segir Örnólfur. Þá telur hann einkennilegt að stálið hafi ekki verið galvaníserað og að ljóst sé að misbrestur hafi orðið á eftirliti með framleiðslu þess í Kína eins og komið hafi í ljós þegar suðurveggurinn var tekin niður. Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri verkefnisins hjá Íslenskum aðalverktökum, gefur hins vegar ekki mikið fyrir þessa gagnrýni. „Þetta stál er allt innanhús og ryðgar ekki. Áður en glerið var sett upp stóð stálið bert og þá ryðgaði það eins og eðlilegt er en nú þarf engar áhyggjur að hafa af því,“ segir Sigurður og bætir við: „Ég fullyrði það fullum fetum að þetta er ekki áhyggjuefni. Ég er raunar bara gapandi á þessari umræðu,“ segir Sigurður og bendir á að víða á Íslandi megi finna ómeðhöndlað stál innandyra með fínum árangri, svo sem í Listasafni Reykjavíkur.- mþl
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira