Umboðsmaður Alþingis kannar kvörtun Hagsmunasamtaka Heimilanna 16. ágúst 2011 18:30
Umboðsmaður Alþingis hefur krafið Seðlabankastjóra skýringa á reglum sem heimila verðtryggingu á höfuðstól lána. Hagsmunasamtök heimilanna segja þetta veigamikið mál fyrir heimilin í landinu en þau sendu kvörtun til Umboðsmanns um þetta mál. Hagsmunasamtök Heimilanna telja það ólögmætt að verðbætur séu lagðar við höfuðstól lánsfjár. Þau byggja þessa skoðun sína á lögum um vexti og verðtryggingu en í þeim segir að verðtrygging sé þegar skuldari lofar að greiða peninga þar sem umsamið er að greiðslurnar skuli verðtryggðar. Hagsmunasamtökin telja því lögin einungis gera ráð fyrir því að bæta megi verðbótum við greiðslur af láni, en ekki höfuðstól þess. Reglur Seðlabankans kveða hins vegar á um að höfuðstóll láns skuli breytast í samræmi við vísitölu neysluverðs, þ.e. að verðtryggja megi höfuðstólinn. Umboðsmaður Alþingis kannar nú málið og hefur sent Seðlabankanum bréf þar sem þess er krafist að Seðlabankinn útskýri á hvaða lagagrundvelli reglur hans um að verðtryggja megi höfuðstól lána séu reistar. Umboðsmaður bendir á að ákvarðanir stjórnvalda verði að eiga sér stoð í lögum. Þá tekur hann það jafnframt fram að af þeim gögnum eða upplýsingum sem hann hafi kynnt sér verði ekki fyllilega ráðið hvernig framkvæmd þessara mála hafi verið háttað á liðnum árum. Þess er krafist að bankinn svari bréfi umboðsmanns eigi síðar en 26. ágúst. Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að ef niðurstaða umboðsmanns Alþingis verði að verðtrygging höfuðstóls sé ólögmæt muni það hafa mikil áhrif á heimilin í landinu. Andrea óttast hins vegar að ef umboðsmaður Alþingis kemst að sömu niðurstöðu og hagsmunasamtökin muni það ekki duga til.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Veður Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Fleiri fréttir „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Sjá meira