Icesave hvergi nærri lokið 21. maí 2011 05:00 Þrotabú gamla Landsbankans gæti staðið undir öllum forgangskröfum. Það sem út af stendur fer til almennra kröfuhafa. Vaxtagreiðslur vegna Icesave-málsins falla ekki á þrotabúið. Fréttablaðið/Valli
Ekki má útiloka að Icesave-málið endi fyrir EFTA-dómstólnum og að Bretar og Hollendingar láti á reyna að sækja vaxtagreiðslur í vasa stjórnvalda hér vegna fjármuna sem notaðir voru til að greiða út lágmarkstryggingu til innstæðueigenda. „Ég sé engin sérstök merki þess að ESA muni láta málið falla niður,“ segir Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður sem sæti átti í samninganefnd Íslands í viðræðum við Breta og Hollendinga. Samninganefndin með Lee Buchheit í fararbroddi sagði undir lok síðasta árs þann samning sem þá lá fyrir þann síðasta, samningaleiðin væri fullreynd. Áhætta fælist í að fara dómstólaleiðina. Samkvæmt nýju verðmati skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans sem kynnt var á fimmtudag stefnir í að þrotabúið geti staðið undir 94 til 99 prósentum af höfuðstól Icesave-krafna. Þetta er betra mat en áður hefur legið fyrir. Þegar þrotabúið hefur greitt upp forgangskröfur, það er Icesave-kröfur og heildsöluinnlán, fellur það sem út af stendur til almennra kröfuhafa. Í kjölfar nýs verðmats uppfærði fjármálaráðuneytið mat sitt á kostnaði ríkissjóðs vegna þeirra samninga sem voru felldir. Hann hefði orðið ellefu milljarðar króna. Ráðuneytið tekur fram að Icesave-málið geti enn farið fyrir dómstóla. Kostnaðurinn af þeim sökum og af annarri óvissu sé óljós. Ríkið hefur ekki undirgengist skuldbindingar um vaxtagreiðslur af Icesave-lánunum. „Ég hef enga ástæðu til að ætla að Bretar og Hollendingar muni samþykkja að láta málið kyrrt liggja. Ég tel það óraunhæft. Þeir munu láta á það reyna að fá kostnað af fjármögnuninni greiddan. Kostnaðurinn vegna eldri Icesave samninga sem voru með 5,55 prósenta vöxtum hefði verið eitt hundrað og sjötíu milljarðar króna ónúvirt, samkvæmt sömu reikniforsendum og nýju mati skilanefndar. Af þessu sést að vaxtakostnaðurinn getur orðið gríðarhár og hefur því verulega þýðingu í þessu máli,“ segir Lárus og bendir á að við bætist spurningin hvort stjórnvöld hafi mismunað innstæðueigendum. Við það gæti kostnaður vegna vaxta hækkað verulega. Það væri því mikil einföldun að segja að þetta mál sé komið á endastöð með þessum nýju upplýsingum frá skilanefnd sem vissulega eru jákvæðar. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Erlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira