Norðlingaalda út af borðinu - grænt ljós gefið á virkjanir í Þjórsá 19. ágúst 2011 11:06 Urriðafoss. Virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru settar í svokallaðan orkunýtingarflokk.
Ekkert verður af Norðlingaölduveitu en virkja má í neðri hluta Þjórsár, verði drög að þingsályktunartillögu rammaáætlunar samþykkt á Alþingi. Alls eru tuttugu svæði vernduð samkvæmt tillögunni en tuttugu og tvö má nýta til orkuöflunar. Drög að þingsályktunartillögunni voru kynnt í dag af þeim Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra. Í rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma eru landssvæði þar sem er að finna virkjunarkosti metin eftir því hvort þá megi nýta til orkuvinnslu eða hvort ástæða sé til að friðlýsa þau eða kanna frekar. Í tillögunni eru svæðin því flokkuð í þrjá flokka, nýtingarflokk, verndarflokk og biðflokk. Flokkunin byggir á skýrslu verkefnastjórnar sem skipuð var af iðnaðarráðherra í samráði við umhverfisráðherra í ágúst 2007. Sextíu og níu virkjunarkostir eru teknir til skoðunar í tillögunni og falla tuttugu og tveir kostir í orkunýtingarflokk. Þar ber hæst að fallist er á þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár, Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Tuttugu og sjö svæði falla í svokallaðan biðflokk en tuttugu svæði eru sett í verndarflokk samkvæmt tillögunni. Þjórsárver verða vernduð því Norðlingaölduveita fellur í þennan flokk. Sama er að segja um Gjástykki. Í rökstuðningi fyrir því að ekki skuli farið í Norðlingaölduveitu segir að hún myndi fela í sér röskun vestan Þjórsár á lítt snortnu landi í jaðri Þjórsárvera auk áhrifa á sérstæða fossa í Þjórsá. Gjástykki er hinsvegar hluti af eldstöðvarkerfi Kröflu sem hefur verndargildi á heimsmælikvarða. Í ljósi þess þykir rétt að vernda svæðið. Nú þegar tillagan hefur verið gerð gerð opinber gefst fólki tólf vikna frestur til að koma á framfæri athugasemdum við tillöguna áður en hún verður lögð fram á Alþingi.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira