Sálfræðingur Guðrúnar Ebbu borinn þungum sökum Erla Hlynsdóttir skrifar 8. nóvember 2011 19:15
Með staðhæfingum um falskar minningar Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur er verið að bera sálfræðing hennar þungum sökum. Þetta segir formaður Sálfræðingafélags Íslands. Þegar talað er um falskar minningar er í raun verið að ræða um meðferðir sem voru mikið í umræðunni á níunda áratugnum þar sem meðferðaraðilar náðu í minningar sem talið var að hefðu verið bældar niður. „Þá komu upp mörg mál í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem þetta reyndist svo ekki rétt, það sem fólk mundi eftir, og meðferðaraðilarnir plöntuðu minningunum inn hjá skjólstæðingum sínum," segir Pétur Tyrfingsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands. Séra Skúli Ólafsson sagði í viðtali Kastljóss í gær að hann teldi minningar systur sinnar, Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, ekki vera raunverulegar heldur falskar. Þá sagði hann falskar minningar vera afleiðingu þess að fólk fer í samtalsmeðferð. Pétur segir mikilvægt að fólk átti sig á því hvað það er að segja þegar það talar um falskar minningar. „Ég sem formaður Sálfræðingafélags Íslands vil benda á að með því að gera það þá er þarna er auðvitað verið að bera félagsmann mjög þungum sökum. Ég veit ekki til þess að nokkur af mínum félagsmönnum beiti þessari aðferð," segir Pétur. Kallað hefur verið eftir því að sálfræðingar sem fagaðilar taki þátt í umræðu um falskar minningar í tengslum við þetta viðkvæma og persónuleg mál. „Slík umræða getur í raun ekki farið fram. Það er ekki siðfræðilega réttlætanlegt. Við erum ekki tilbúnir að gefa út miklar yfirlýsingar," segir Pétur.
Mest lesið Klara Baldursdóttir er látin Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Innlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Stærsta árásin á Kharkív hingað til Erlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Erlendur ferðamaður féll í Brúará Innlent „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Innlent „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent Fleiri fréttir „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Sjá meira