Tíska og hönnun

Reykjavík Fashion Festival í beinni alla helgina

Myndir frá fimmtudagskvöldinu á Live Project.
Myndir frá fimmtudagskvöldinu á Live Project.
Glöggir lesendur Vísis hafa eflaust tekið eftir líflegum borðum sem birtust á Vísi í gær þar sem fletta má ljósmyndum og myndböndum frá Reykjavík Fashion Festival.

Vefsíðan Live Project stendur fyrir herlegheitunum en alla helgina verður hægt að fylgjast með framgangi RFF-hátíðarinnar þar og birtist brot af því besta í borðunum á Vísi. Live Project-síðan fyrir RFF fór í loftið í gærkvöldi og eru nú þegar komnar inn um hundrað myndir.

Live Project gengur þannig fyrir sig að notendur og útsendarar síðunnar sem eru staddir á hátíðinni senda inn myndir og myndbönd af því sem fyrir augu ber og geta þeir sem heima sitja því fylgst með. Síðan fór fyrst í loftið á Iceland Airwaves-hátíðinni og gekk vonum framar. Þá voru sendar inn yfir þrjú hundruð myndir og myndbönd sem gáfu góða mynd af fjörinu þá helgina. Hægt er að skoða afraksturinn af Airwaves-hátíðinni hér á liveproject.is.

Það er sáraeinfalt að senda myndir á síðuna. Bæði í gegnum farsímavefinn m.liveproject.is og á netfangið live@liveproject.is. Í gær var einnig kynnt til sögunnar forrit (app) fyrir Android-síma, sem hægt er að nálgast hér. Live Project verður síðan næst á ferðinni um næstu helgi en þá mun síðan fylgjast með AK Extreme-hátíðinni á Akureyri.

RFF

Tengdar fréttir

Fullkomin heimasíða fyrir þá sem missa af Airwaves

Á morgun fer í loftið glæný íslensk vefsíða með efni ólíku því sem hingað til hefur þekkst. Síðan heitir Liveproject.is og tekur hún fyrir einstaka viðburði hverju sinni, að þessu sinni Airwaves-hátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×