Innlent

Játar að hafa myrt mömmu Leifs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leif Magnús Grétarsson við leiði móður sinnar.
Leif Magnús Grétarsson við leiði móður sinnar.

Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður sem grunaður er um að myrða mömmu hins íslenska Leifs Magnúsar Grétarssonar í bænum Mandal Noregi hefur játað að bera ábyrgð á verknaðinum. Aftenposten segir að hann hafi játað við yfirheyrslur í morgun. Hann gengst hins vegar ekki við því að hafa framið morðið að yfirlögðu ráði.

Móðir Leifs Magnúsar hét Heidi Thisland Jensen. Hún lést af völdum fjölda stungusára í líkamanum þann 20. mars síðastliðinn. Grunur leikur á að hún hafi einnig verið tekinn kverkataki áður en hún lést, en lögreglan í Noregi hefur ekki viljað staðfesta það.

Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur Leif Magnús búið hjá fósturfjölskyldu frá því að móðir hans var myrt, en föðurfjölskyldan vill fá hann til Íslands. Heidi var jarðsungin í síðustu viku. Föðurfjölskyldan var viðstödd athöfnina.


Tengdar fréttir

Heim til Eyja eftir harmleik í Noregi

„Þetta er hræðilegur harmleikur,“ segir Óskar P. Friðriksson, sem er á leið til Noregs á laugardag ásamt fjölskyldu sinni til þess að hitta barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, átta ára. Móðir Leifs Magnúsar, hin 28 ára gamla Heidi Thisland Jensen, var myrt aðfaranótt sunnudagsins í bænum Mandal í Noregi.

Gríðarlegt áfall fyrir drenginn

"Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við loksins hittum hann,“ segir Óskar P. Friðriksson úr Vestmannaeyjum sem hitti átta ára gamalt barnabarn sitt, Leif Magnús Grétarsson, í síðustu viku.

Gott að hitta gamla skólafélaga

Honum líkar vel og er alsæll. Hann er búinn að hitta gamla bekkjarfélaga og leikur sér við þá. Þetta gengur bara ofsalega vel,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi Leifs Magnúsar, átta ára drengs í Vestmannaeyjum.

Besta gjöfin að fá hann heim

"Ég hef ekki fengið betri afmælisgjöf um ævina,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi Leifs Magnúsar Grétarssonar, átta ára. Leif Magnús flytur til föðurfjölskyldu sinnar í Vestmannaeyjum frá Noregi 19. júní næstkomandi, á afmælisdegi afa síns.

Leif Magnús flytur til Íslands í sumar

"Þetta eru mjög góð tíðindi. Það er þungu fargi af okkur öllum létt,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi hins átta ára gamla Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland. Norskur dómstóll hefur samþykkt að veita Grétari, föður Leifs, fullt forræði yfir honum og er von á Leif til Íslands í byrjun júní þegar skólahaldi lýkur í bænum Mandal í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×